Stjórn Akureyrarstofu - 95
- Kl. 08:00 - 10:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 95
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Jóhann Jónsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2011-2014
Málsnúmer 2011010071Unnið að starfsáætlun og farin lokayfirferð.
Meirihluti stjórnarinnar samþykkir starfsáætlunina en felur framkvæmdastjóra að ljúka kostnaðaráætlunum fyrir einstök verkefni í henni og birta með öðru efni sem snertir stjórn Akureyrarstofu á vef bæjarins. Starfsáætlunin verður endurskoðuð a.m.k. árlega.
Jóhann Jónsson fulltrúi S-lista óskar að eftirfarandi verði bókað:
Í starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu er margt sem samrýmst getur stefnu Samfylkingarinnar sem ég get út af fyrir sig fallist á en þar koma fyrst og fremst fram áherslur og stefnumál L-listans og ég tel því eðlilegt að sitja hjá við afgreiðsluna.Náttúrugripasafn - tillaga að staðsetningu í Hrísey
Málsnúmer 2011040033Erindi dags. 1. apríl 2011 frá Aðalsteini Bergdal þar sem hann varpar fram þeirri hugmynd að koma Náttúrugripasafni Akureyrar fyrir í Hrísey. Til stendur að koma hljóðfærasafni Gunnars Tryggvasonar fyrir á 2. hæð í húsinu Borg, en hugmynd Aðalsteins er að koma Náttúrugripasafninu fyrir á 1. hæðinni.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra að afla frekari upplýsinga um málið þ.m.t. um kostnað við hugmyndina.</DIV>