Bæjarráð - 3530
- Kl. 08:30 - 13.22
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3530
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Matthías Rögnvaldsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Preben Jón Pétursson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Katrín Björg Ríkarðsdóttiraðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020
Málsnúmer 2016050137Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Jón Hrói Finnsson framkvæmdastjóri búsetudeildar, Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar, Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri og Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri skóladeildar sátu fundinn undir þessum lið ásamt Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra.
Einnig sátu Dagbjört Elín Pálsdóttir bæjarfulltrúi S-lista, Ingibjörg Ólöf Isaksen bæjarfulltrúi B-lista og Silja Dögg Baldursdóttir bæjarfulltrúi L-lista fundinn undir þessum lið.Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál
Málsnúmer 2016100013Lögð fram drög að mánaðarskýrslu um stöðugildi, yfirvinnu og fleira.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Vinnumálastofnun - samstarf við innleiðingu á nýju húsnæðisbótakerfi
Málsnúmer 2016110073Erindi frá Vinnumálastofnun móttekið 11. nóvember 2016, þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið tilnefni tengilið til að miðla upplýsingum til Vinnumálastofnunar við innleiðingu á nýju húsnæðisbótakerfi.
Bæjarráð skipar Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar sem tengilið Akureyrarbæjar við Vinnumálastofnun.
Móttaka flóttafólks
Málsnúmer 2015090017Erindi dagsett 7. nóvember 2016 frá velferðarráðuneytinu þar sem kannaður er vilji Akureyrarbæjar til að taka að sér eina fjölskyldu til viðbótar við þær fjórar sem tekið var á móti fyrr á þessu ári. Kristín Sóley Sigursveinsdóttir verkefnastjóri vegna móttöku flóttafólks sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að ræða við velferðarráðuneytið.
Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarbæ - akstur vélsleða innanbæjar
Málsnúmer 2016110074Erindi dagsett 7. nóvember 2016 frá Guðmundi Hannessyni fyrir hönd Stjórnar Ey-LÍV (Landsamband Íslenskra Vélsleðamanna Eyjafjarðardeild www.liv.is) þar sem óskað er eftir því við Akureyrarbæ að teknar verði upp formlegar viðræður um breytingu á Lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað þess eðlis að ökumönnum vélsleða verði heimilt að keyra stystu leið á bensínstöð og stystu leið úr bænum í framhaldi.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 287. fundar stjórnar Eyþings dagsett 26. október 2016.
Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdirSjúkrahúsið á Akureyri - stefnumótun 2017-2021
Málsnúmer 2016110079Erindi dagsett 11. nóvember 2016 frá Þóru Ester Bragadóttur fyrir hönd verkefnahóps um áhrif og væntingar ytri hagsmunaaðila um stefnumótun Sjúkrahússins á Akureyri. Í erindinu er óskað eftir innleggi Akureyrarbæjar í stefnumótunina í formi ábendinga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda innlegg fyrir hönd Akureyrarbæjar.
Reglur um réttindi, skyldur og launakjör embættismanna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2016110076Lögð fram drög að breytingum á reglum um réttindi, skyldur og launakjör embættismanna Akureyrarbæjar.