Skólanefnd - 7
- Kl. 09:00 - 11:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 7
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Ágúst Frímann Jakobssonfulltrúi skólastjóra
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- Sædís Inga Ingimarsdóttirfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Hildur Elínar Sigurðardóttirfulltrúi leikskólakennara
- Áshildur Hlín Valtýsdóttirfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Samband íslenskra sveitarfélaga - úttekt á starfi leikskóla
Málsnúmer 2012121107Fyrir fundinn var lögð skýrsla um mat á starfi leikskólans Tröllaborga sem unnin var á vegum Námsmatsstofnunar fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Fanney Jónsdóttir mætti á fundinn og gerði grein fyrir niðurstöðum matsins og úrbótaáætlun sem unnin hefur verið.

Skólanefnd þakkar Fanneyju Jónsdóttur fyrir og hvetur starfsfólk leikskólans til að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið þar.

Álag og fjarvera í leikskólum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2013120098Karl Frímannsson þróunarstjóri mætti á fundinn og fór ásamt Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa yfir skýrslu um álag og fjarveru í leikskólum Akureyrarbæjar, sem lögð var fram til kynningar á fundinum.

Skólanefnd þakkar Karli og Hrafnhildi fyrir kynninguna og frestar afgreiðslu til næsta fundar.

Breyting á stjórnskipulagi Naustaskóla
Málsnúmer 2014010054Erindi dags. 4. apríl 2014 þar sem skólastjóri Naustaskóla lagði fram tillögu að nýju stjórnskipulagi fyrir skólann frá og með 1. ágúst 2014.

Skólanefnd samþykkir tillöguna.

Tónræktin - rekstur
Málsnúmer 2014030313Erindi dags. 3. apríl 2014 þar sem bæjarráð vísar erindi frá Birni Þórarinssyni, vegna reksturs Tónræktarinnar til skólanefndar. Í erindinu kemur fram að Björn mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa til að ræða málefni Tónræktarinnar sem verður 10 ára í ár. Björn er kominn á eftirlaun og ætlar að fara að hætta rekstrinum. Vill að bærinn skoði hvort hann vill koma að framhaldinu á rekstrinum eftir hans tíma. Segir þannig fyrirkomulag vera þekkt t.d. á Selfossi og í Reykjavík. \nHugmyndin er sú að bærinn myndi greiða laun eins starfsmanns og þá væri hægt að nota skólagjöldin í annan rekstur.\nHann fær kr. 750.000 frá bænum í reksturinn í dag.

Skólanefnd frestar afgreiðslu og felur fræðslustjóra að afla frekari upplýsinga um málið.

Viðurkenningar skólanefndar 2014
Málsnúmer 2014030102Fyrir fundinum lá tillaga um að uppskeruhátíð skólanefndar, þar sem viðurkenningar verða afhentar fyrir framúrskarandi skólastarf, verði haldin þriðjudaginn 13. maí nk. í Hofi.

Skólanefndin samþykkir tillöguna.