Framkvæmdaráð - 232
- Kl. 10:18 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 232
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Helgi Snæbjarnarson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna- fráveitu og hreinlætismála
- Bergur Þorri Benjamínssonfundarritari
Isavia ohf - uppsögn þjónustusamnings um viðbúnaðarþjónustu á flugvellinum á Akureyri
Málsnúmer 2010110004Ræddar voru hugmyndir um framtíð þjónustusamnings um viðbúnaðarþjónustu á Akureyrarflugvelli.\nÞorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri og Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur gerðu grein fyrir viðræðum við Isavia ohf á fundinum.\nNjáll Trausti Friðbertsson fulltrúi D-lista vék af fundi undir þessum lið.

Framkvæmdaráð þakkar kynninguna.

Slökkvilið Akureyrar kaup á klippum
Málsnúmer 2011040068Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri kynnti stöðu mála vegna fjármögnunar á kaupum á nýjum klippum fyrir SA, en safnast hefur um helmingur fjárhæðar vegna kaupanna.

Framkvæmdaráð þakkar slökkviliðsstjóra komuna á fundinn.
Framkvæmdaráð samþykkir samhljóða að óska eftir aukafjárveitingu bæjarráðs allt að kr. 4.000.000 fyrir kaupum á klippibúnaði fyrir Slökkvilið Akureyrar.

SVA helgarakstur
Málsnúmer 2011040069Kynntur var kostnaður vegna helgaraksturs SVA yfir sumarmánuðina.

Meirihluti framkvæmdaráð samþykkir að taka upp helgarakstur SVA.

Sigfús Arnar Karlsson fulltrúi B-lista óskaði bókað að hann teldi rétt að vísa málinu til vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 og greiddi því atkvæði á móti.

Snjómokstur og hálkuvarnir 2010-2012 - beiðni um gögn
Málsnúmer 2010110137Lagt fram til kynningar erindi dags. 31. mars 2011 frá GV-gröfum ehf og Túnþökusölu Kristins ehf þar sem gerðar eru athugasemdir við framkvæmd snjómokstursútboðs.

Samtök iðnaðarins - beiðni um upplýsingar um jarðvinnuframkvæmdir 2007-2010
Málsnúmer 2010100019Framkvæmdaráð ræddi bréf frá verktökum á Akureyri dags. 10. mars 2011 þar sem farið er yfir samskipti við starfsmenn framkvæmdadeildar og framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarkaupstaðar.