Kjarasamninganefnd - 3
- Kl. 08:30 - 10:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttir
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirstarfsmannastjóri ritaði fundargerð
Umsókn um TV einingar v/markaðs- og samkeppnisaðstæðna
Málsnúmer 2015020117Fram haldið umfjöllun sem frestað var á fundi kjarasamninganefndar 23. mars sl. um umsókn um tímabundin viðbótarlaun v/markaðs- og samkeppnisaðstæðna fyrir starf félagsráðgjafa á skóladeild.
Afgreiðslu frestað.
TV einingar - úthlutun vorið 2015
Málsnúmer 2015010236Kynnt niðurstaða matshóps um úthlutun tímabundinna viðbótarlauna (TV eininga) vegna verkefna- og hæfni vorið 2015. Á fund nefndarinnar mættu fulltrúar í matshópnum Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður.
Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu matshópsins um úthlutun TV eininga til þriggja umsækjenda.
Kynjasamþætting og kynjuð fjárhagsáætlunargerð
Málsnúmer 2015050068Umræða um innleiðingu á kynjasamþættingu og kynjaðri fjárhagsáætlunargerð hjá Akureyrarbæ, hlutverk og verkefni kjarasamninganefndar.
Kerfisbundin endurskoðun starfsmats
Málsnúmer 2015020119Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnti kerfisbundna endurskoðun starfsmats sveitarfélaga sem unnið er að. Upplýsingar um starfsmat sveitarfélaga SAMSTARF má finna: http://www.samband.is/verkefnin/kjara--og-starfsmannamal/starfsmat/
Kjarasamninganefnd þakkar kymninguna.