Atvinnumálanefnd - 14
16.12.2015
Hlusta
- Kl. 16:00 - 17:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 14
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Jóhann Jónsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttirverkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista mætti í forföllum Erlu Bjargar Guðmundsdóttur.[line]
Atvinnumálanefnd - kynjuð fjárhagsáætlun
Málsnúmer 2015040049Lagt var til að kaupa gögn frá Creditinfo varðandi samsetningu atvinnumarkaðarins á Akureyri sem yrðu meðal annars nýtt af meistaranemanda við Háskólann á Akureyri sem ætlar að vinna lokaverkefni sem fjallar um atvinnumarkaðinn á Akureyri út frá kynjasjónarmiðum.
Atvinnumálanefnd samþykkir að gögnin verði keypt og felur verkefnastjóra atvinnumála að ganga frá kaupunum.
Frumkvöðlasetur á Akureyri
Málsnúmer 2015110232Lagt fram minnisblað dagsett 9. desember 2015 vegna mögulegs samstarfssamnings við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um rekstur frumkvöðlaseturs á Akureyri og kostnað vegna breytinga á húsnæði.
Atvinnumálanefnd leggur til að farið verði í formlegar viðræður við Nýsköpunarmiðstöð Íslands um rekstur frumkvöðlaseturs á Akureyri og vísar málinu til bæjarráðs.
Brothættar byggðir
Málsnúmer 2015070054Rætt um stöðu verkefnisins.