Bæjarráð - 3301
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3301
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hermann Jón Tómasson
- Ólafur Jónsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Kaup eigna af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 2011120034Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu möguleg kaup Akureyrarbæjar á nokkrum eignum af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir í samræmi við framlögð gögn að kaupa eignir að Dvergagili 3, Snægili 1, Hafnarstræti 16 og Geislatúni 1 og að ganga til samninga varðandi Skógarlund 1.

Kaupverðið verður fjármagnað með fasteignaláni frá Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Sveitarfélagið Skagafjörður - ályktun vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra
Málsnúmer 2011120021Lagt fram til kynningar bréf dags. 2. desember 2011 frá sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar þar sem vakin er athygli á ályktun sem samþykkt var á 274. fundi sveitarstjórnarinnar 30. nóvember 2011 vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2011
Málsnúmer 2011020014Lögð fram til kynningar 791. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 25. nóvember 2011.

Almannaheillanefnd
Málsnúmer 2008100088Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 2. desember 2011.

Rekstur - staða mála - embættismenn
Málsnúmer 2011050032Lögð fram til kynningar minnisblöð frá embættismönnum varðandi frávik í rekstri.

Áheyrnarfulltrúar í nefndum
Málsnúmer 2011120053Samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum eiga þau framboð sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa í þær nefndir sem viðkomandi framboð á ekki fulltrúa í. \nUmræður um hvort þessir áheyrnarfulltrúar fái greidd nefndarlaun fyrir setu á fundum.