Öldungaráð - 10
- Kl. 09:00 - 10:15
- Rósenborg - fundarherbergi samfélagssviðs 2. hæð (austur)
- Fundur nr. 10
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Sigurður Hermannssonvaraformaður
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Halldór Gunnarsson
- Anna G Thorarensen
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Velferðarstefna 2014 - 2018
Málsnúmer 2015010191Óskað hefur verið eftir umsögn Öldungaráðs á velferðarstefnu Akureyrarbæjar
Öldungaráð fagnar þessum drögum og telur stefnuna metnaðarfulla. Passa þarf upp á að eldri borgurum sé gert jafnhátt undir höfði og börnum og ungmennum þegar kemur að aðgengi og framboði að tómstundum og leggur á það áherslu að ráðið fái að koma að gerð aðgerðaráætlunar er snýr að málefnum eldri borgara.
Upplýsingastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015110167Óskað er eftir umsögn Öldungaráðs á upplýsingastefnu Akureyrarbæjar.
Öldungaráð hefur ekki athugasemdir við stefnuna en vill koma þeirri athugasemd á framfæri að mikilvægt er að allar upplýsingar er varða málefni eldri borgara séu á einum stað á heimasíðu bæjarins.
Jafnframt telur Öldungaráð ástæðu til þess að Akureyrarbær haldi kynningarfund á heimasíðu bæjarins fyrir eldri borgara.