Kjarasamninganefnd - 6
- Kl. 13:00 - 13:50
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Gunnar Gíslason
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar - vinna samhliða töku lífeyris
Málsnúmer 2014080060Umfjöllun um fyrirkomulag vinnu hjá Akureyrarbæ samhliða töku lífeyris í Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar.
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins - vinna samhliða töku lífeyris
Málsnúmer 2017060021Umfjöllun um fyrirkomulag vinnu hjá Akureyrarbæ samhliða töku lífeyris hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fræðslusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Kjarasamninganefnd samþykkir að fela sviðstjóra fræðslusviðs og skólastjórum grunnskóla að móta verklagsreglur í samræmi við umræður á fundinum, um fyrirkomulag vinnu samhliða töku lífeyris hjá LSR.
Reglur um stjórnendaálag
Málsnúmer 2017060022Umfjöllun um reglur um stjórnendaálag forstöðumanna og erindi frá umhverfis- og mannvirkjasviði dags. 24. mars 2017 um greiðslu stjórnendaálags.
Kjarasamninganefnd getur ekki orðið við erindinu þar sem það fellur ekki undir reglur um greiðslu stjórnendaálags til forstöðumanna hjá Akureyrarbæ.