Ungmennaráð - 53
- Kl. 16:30 - 18:45
- Rósenborg
- Fundur nr. 53
Nefndarmenn
- Anton Bjarni Bjarkason
- Elsa Bjarney Viktorsdóttir
- Apríl Ýr Kro
- Fríða Björg Tómasdóttir
- Guðmar Gísli Þrastarson
- Haukur Arnar Ottesen Pétursson
- Heimir Sigurpáll Árnason
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- París Anna Bergmann Elvarsd.
- Telma Ósk Þórhallsdóttir
Starfsmenn
- Karen Nóadóttirumsjónarmaður ungmennaráðs ritaði fundargerð
- Hafsteinn Þórðarsonforvarna- og félagsmálafulltrúi
- Ari Orrasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
Samþykkt fyrir ungmennaráð
Málsnúmer 2020110627Samþykkt Ungmennráðs þarfnast yfirhalningar og er í endurskoðun. Samþykktin sem unnið er út frá í dag er í raun ósamþykkt en margt þar inni sem þarfnast lagfæringar. Ungmennaráð fór yfir drög að nýrri samþykkt, kom með athugasemdir og er skjalið nú tilbúið til samþykktar hjá bæjarstjórn.
Ungmennaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022120502Ungmennaráð mun skrifa skýrslu þar sem farið er yfir helstu atriði síðasta starfsárs, líkt og gert var árið áður. Skýrslan verður gerð aðgengileg á rafrænum vettvangi ráðsins og mun nýtast til úrbóta í starfsemi ráðsins og í kringum það ásamt því að hún hjálpar nýjum fulltrúum að setja sig betur inn í starfið. Ráðið mun skila skýrslunni inn fyrir 21. ágúst nk.
Ungmennaráð - bréf um að lögbinda hlutverk ungmennaráða
Málsnúmer 2024080076Ungmennaráð ræddi um að skrifa bréf þess efnis að lögbinda hlutverk ungmennaráða í landinu líkt og hefur verið rætt um í tengslum við æskulýðslögin sem eru nú í endurskoðun. Hugmynd kom upp um að gamla og nýja ráðið myndu skrifa bréfið saman og senda frá sér til mennta- og barnamálaráðherra.
Ungmennaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022120502Síðasti fundur ráðsins og orðið var laust. Telma minnti m.a. á mikilvægi þess að fylgja eftir stöðu mála frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins og kanna hvort búið væri að samræma verklag nemendaráða grunnskólanna líkt og rætt hafði verið. Öll í ráðinu voru sammála um að þetta yrði skoðað.