Umhverfis- og mannvirkjaráð - 162
- Kl. 08:15 - 11:45
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 162
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Georg Fannar Haraldssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Brú yfir Glerá - Skarðshlíð_Glerártorg
Málsnúmer 2022120693Lagt fram minnisblað dagsett 17. maí 2024 varðandi göngu- og hjólabrú yfir Glerá.
Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Framkvæmdin við göngu- og hjólabrú yfir Glerá verður boðin út í vikunni.
Fylgiskjöl
Jöfnunarstöð - Strætisvagnar Akureyrar
Málsnúmer 2024050861Lagt fram minnisblað dagsett 17. maí 2024 varðandi jöfnunarstöð Strætisvagna Akureyrar.
Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram með skipulagssviði Akureyrarbæjar.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Ólafur Kjartansson V-lista óska bókað:
Svæðið er mjög lítið og því mjög takmarkað svigrúm til framþróunar á því. Ef það á að ganga upp sem jöfnunarstoppistöð fyrir innanbæjar- og landsbyggðarstrætó er nauðsynlegt að horfa til þess hvernig aðkoma á að vera að því, hvort heldur sem er fyrir akandi, gangandi, hjólandi og þau sem eiga erfitt með gang. Eins er mikilvægt að horfa sérstaklega til þess hvort og þá hvaða áhrif jöfnunarstoppistöðin komi til með að hafa á umferðarflæði um svæðið, en þar eru nú þegar að myndast umferðarteppur.Fylgiskjöl
Hafnarstræti 16 - þjónustuíbúðir
Málsnúmer 2023031370Lögð fram stöðuskýrsla 2 dagsett 17. maí 2024 varðandi byggingu á Hafnarstræti 16.
Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lagt fram vinnuferli fjárhagsáætlunar og tímalína fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.
Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sat fundinn undir þessum lið.Torfunefsbryggja - breyting á deiliskipulagi miðbæjar
Málsnúmer 2022090822Lögð fram til umræðu deiliskipulagstillaga fyrir Torfunef.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð gerir ekki athugasemdir við skipulagið eins og það liggur fyrir og leggur áherslu á að þetta svæði sé á einni hendi eins og samkeppnistillaga sýnir.
Inga Dís Sigurðardóttir M-lista situr hjá.Boginn - úttektir á gæðum gervigrass
Málsnúmer 2024041531Lagt fram minnisblað dagsett 17. maí 2024 vegna FIFA gæðaúttektar á gervigrasinu í Boganum.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að viðhald gervigrasvalla sé í samræmi við fyrirliggjandi verklag um umhirðu og viðhald gervigrasvalla og samninga Akureyrarbæjar við íþróttafélög þess efnis, með það að markmiði að tryggja endingartíma og gæði vallanna.
Fylgiskjöl
Hlíðarfjall - yfirferð vetrar
Málsnúmer 2024050866Lögð fram til kynningar samantekt dagsett 21. maí 2024 vegna stöðu Hlíðarfjalls eftir veturinn 2023-2024.
Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli og Jónas Stefánsson svæðisstjóri í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl
Lystigarður - salerni
Málsnúmer 2023060069Lagt fram minnisblað dagsett 16. maí 2024 varðandi nýja salernisaðstöðu í Lystigarðinum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti viðauka að upphæð kr. 10 milljónir og vísar viðaukanum til afgreiðslu í bæjarráði.
Fylgiskjöl
Móahverfi - gatnagerð og lagnir - áfangi 1
Málsnúmer 2023030859Lagt fram minnisblað dagsett 17. maí 2024 vegna Móahverfis.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti viðauka að upphæð kr. 200 milljónir og vísar viðaukanum til afgreiðslu í bæjarráði.
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og Óskar Ingi Sigurðsson B-lista óska bókað:
Það er sérkennilegt að nauðsynlegt sé að óska eftir viðauka fyrir þessu verkefni nú, enda lá ljóst fyrir við gerð fjárhagsáætlunar þessa árs, að þörf væri á þessu fjármagni vegna uppbyggingar Móahverfis.Fylgiskjöl
Búnaðarkaup í leik-, grunn- og Tónlistarskóla árið 2024
Málsnúmer 2024040537Liður 5 í fundargerð fræðslu- og lýðheilsuráðs dagsettri 29. apríl 2024:
Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu gerði grein fyrir tillögu um búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2024.
Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Pollý Rósa Brynjólfsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna, Jóhanna María Agnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir framlagða skiptingu til búnaðarkaupa fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til umhverfis- og mannvirkjaráðs.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir búnaðarkaup fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla að upphæð kr. 25 milljónir og að það verði tekið af búnaðarsjóði UMSA og greidd af því leiga af fræðslu- og lýðheilsusviði.
Fylgiskjöl