Öldungaráð - 27
- Kl. 13:00 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 27
Nefndarmenn
- Hjálmar Pálssonformaður
- Hildur Brynjarsdóttir
- Brynjólfur Ingvarsson
- Hallgrímur Gíslasonfulltrúi EBAK
- Úlfhildur Rögnvaldsdóttirfulltrúi EBAK
- Þorgerður Jóna Þorgilsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Halla Birgisdóttir Ottesenforstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Áskorun um þátttöku í skilgreindu þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu
Málsnúmer 2023030277Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri leggur til að bæjarstjórn Akureyrarbæjar leitist eftir þátttöku í skilgreindu þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu sem veitt er eldra fólki í heimahúsum undir sameiginlegri mannafla- og fjármálastjórn. Verkefninu eru gerð skil í liðum A1-A7 í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027. Þá tillögu á að afgreiða á Alþingi vorið 2023.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri velferðarsviðs og Bergdís Bjarkadóttir forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.Öldungaráð tekur undir með stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og leggur til að bæjarstjórn Akureyrarbæjar leitist eftir þátttöku í skilgreindu þróunarverkefni um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu sem veitt er eldra fólki í heimahúsum undir sameiginlegri mannafla- og fjármálastjórn.
Verkefninu eru gerð skil í liðum A1-A7 í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk 2023-2027. Þá tillögu á að afgreiða á Alþingi vorið 2023.Máltíðir fyrir eldri borgara
Málsnúmer 2021023268Umræður um hádegismat og niðurgreiðslu á honum í Birtu og Sölku - félagsmiðstöðvum fólksins.
Öldungaráð bendir á að aðgengi eldra fólks á Akureyri að hollri næringu sé áhyggjuefni og hvetur bæjaryfirvöld til að leita leiða til að fá hádegismat á viðráðanlegu verði fyrir eldra fólk í Birtu og Sölku.
Málefni Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar
Málsnúmer 2023031287Öldungaráð lýsir yfir miklum áhyggjum af málefnum Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar og hvetur alla hlutaðeigandi aðila til að leysa málin sem fyrst.