Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 985
- Kl. 13:00 - 13:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 985
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
Glerárgata 26 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024090772Erindi dagsett 13. september 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Reykja fasteignafélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 26 við Glerárgötu. Innkomin gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Tryggvabraut 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2023091211Erindi dagsett 25. september 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hölds - Fasteignafélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 10 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru teikningar dagsettar 16. september 2024 eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kambagerði 5 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2024090971Erindi dagsett 18. september 2024 þar sem Bergur Steingrímsson sækir um stækkun á bílastæði og úrtak í kantstein við hús nr. 5 við Kambagerði.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.