Bæjarráð - 3694
- Kl. 08:15 - 10:25
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3694
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021-2024 - fjárhagsrammi
Málsnúmer 2020030454Rætt um drög að fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Liður 2 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 21. ágúst 2020:
Lögð fram opnun tilboða í verklegar framkvæmdir dagsett 10. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
BB Byggingar ehf. kr. 220.580.389 118%
Sigurgeir Svavarsson ehf. kr. 204.331.986 110%
Kostnaðaráætlun kr. 186.455.283
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Sigurgeirs Svavarssonar ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Afgreiðslu frestað.
Saga Dags á Akureyri - styrkbeiðni
Málsnúmer 2020080618Erindi til bæjarstjórnar dagsett 20. ágúst 2020 frá Jóhanni Karli Sigurðssyni, þar sem óskað er eftir styrkveitingu fyrir útgáfu á sögu blaðsins Dags.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu og felur bæjarstjóra að svara bréfritara.
Fylgiskjöl
Stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024
Málsnúmer 2019030005Rætt um endurskoðun gildandi byggðaáætlunar. Hluti af endurskoðunarferlinu er samráðsgátt sem sett hefur verið upp á heimasíðu byggðastofnunar.
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2019-2020
Málsnúmer 2020020650Lögð fram til kynningar fundargerð 11. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra dagsett 12. ágúst 2020.
Fundargerðir stjórnarinnar er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.ssne.is/is/fundargerdir/stjorn-ssne