Bæjarráð - 3764
- Kl. 08:15 - 10:55
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3764
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Gunnar Gíslason
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlynur Jóhannsson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Verklagsreglur um yfirlestur bæjarlögmanns á samningum, útboðsgögnum, stefnum, reglum og samþykktum
Málsnúmer 2022030508Lögð fram drög að verklagsreglum um yfirlestur bæjarlögmanns á samningum, útboðsgögnum, stefnum, reglum og samþykktum.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir verklagsreglurnar með fimm samhljóða atkvæðum og felur bæjarstjóra og bæjarlögmanni að kynna þær sviðsstjórum og forstöðumönnum.
Fylgiskjöl
Reglur Akureyrarbæjar um tímabundin viðbótarlaun (TV einingar)
Málsnúmer 2022020591Umfjöllun um túlkun og framkvæmd reglna Akureyrarbæjar um tímabundin viðbótarlaun.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Starfsmannakannanir 2022
Málsnúmer 2022030503Umfjöllun um starfsmannakannanir hjá Akureyrarbæ.
Birna Eyjólfsdóttir forstöðumaður mannauðsmála og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Félag grunnskólakennara - kjarasamningur 2022-2023
Málsnúmer 2022030423Kynntur nýgerður kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag grunnskólakennara.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fræðagarður, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Stéttarfélag lögfræðinga og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga - kjarasamningur 2022-2023
Málsnúmer 2022030155Kynntur nýgerður kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga við Fræðagarð, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Stéttarfélag lögfræðinga og Stéttarfélag bókasafns og upplýsingafræðinga.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Mannréttindastefna - endurskoðun
Málsnúmer 2022011608Kynnt tillaga að endurskoðun mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra og mannauðsstjóra að gera tillögu um með hvaða hætti fylgja á eftir mannréttindastefnu Akureyrarbæjar í kjölfar stjórnsýslubreytinga.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista vék af fundi kl. 09:50.
Golfklúbbur Akureyrar - beiðni um samþykki fyrir skilmálabreytingu láns
Málsnúmer 2016120028Erindi dagsett 14. mars 2022 þar sem Steindór Kr. Ragnarsson framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar óskar eftir samþykki Akureyrarbæjar til að skilmálabreyta núverandi langtímaláni Golfklúbbs Akureyrar, sem tryggt er með veði í golfskálanum að Jaðri, úr verðtryggðu yfir í óverðtryggt.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð heimilar Golfklúbbi Akureyrar skilmálabreytingu á núverandi langtímaláni í samræmi við framlagt erindi og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að ganga frá málinu.
Fylgiskjöl
Strætisvagnar Akureyrar - kaup á rafmagnsstrætisvagni 2022
Málsnúmer 2022021078Liður 3 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 11. mars 2022:
Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi kaup á rafmagnsstrætisvagni.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð mælir með kaupum á rafmagnsstrætisvagni og vísar ákvörðun um útboð til bæjarráðs. Áætlaður kostnaður við kaup á vagninum er kr. 75-80 milljónir.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar umhverfis- og mannvirkjasviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Strætisvagnar Akureyrar - kaup á metanferlibíl 2022
Málsnúmer 2022021079Liður 4 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 11. mars 2022:
Lagt fram minnisblað dagsett 9. mars 2022 varðandi kaup á ferliþjónustubílum.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leitað verði eftir verði í tvær bifreiðar sem ganga fyrir umhverfisvænum orkugjafa. Ein bifreið komi inn í rekstur á árinu 2022 og ein á árinu 2023. Kostnaður við kaup á ferlibifreið er áætlaður kr. 18-20 milljónir og samtals er því um að ræða að áætluð fjármagnsþörf næstu tvö árin sé um kr. 40 milljónir.
Vegna mistaka í framlögðum gögnum við afgreiðslu áætlunargerðar Akureyrarbæjar skilaði beiðni um fjármagn til kaupa á ferlibifreiðum sér ekki alla leið. Ráðið óskar eftir viðauka vegna þessa til bæjarráðs þar sem fjármagnið verði sett á framkvæmdaráætlun.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar umhverfis- og mannvirkjasviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að fjármagn sem ætlað var til strætisvagnakaupa á árinu fari til kaupa á tveimur vistvænum ferlibílum.
Krossanesbraut 0 - Lundeyri - uppkaup vegna skipulags
Málsnúmer 2021120855Lagt fram verðmat Fasteignasölunnar Byggðar á um 36 fm geymslu við húsið Lundeyri F214-8468 í Holtahverfi. Fjarlægja þarf geymsluna vegna vegaframkvæmda og er í deiliskipulagi gert ráð fyrir að geymslan verði fjarlægð.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa og sviðsstjóra fjársýslusviðs að leggja fram kauptilboð í eignina og leggja kaupsamning fyrir bæjarráð til staðfestingar, náist samningar.
Starfslaun listamanna 2022
Málsnúmer 2022030986Skipan fulltrúa í fagráð starfslauna listamanna. Fagráðið er bæjarráði til ráðgjafar um val á listamanni sem hljóta mun starfslaun listamanna árið 2022.
Samþykkt um starfslaunin: akureyri.is/is/moya/page/samthykkt-um-starfslaun-listamannaBæjarráð samþykkir framlagða tillögu að skipan fagráðs starfslauna listamanna.
Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir 2022
Málsnúmer 2022010390Lögð fram til kynningar fundargerð 151. fundar hverfisráðs Hríseyjar dagsett 8. mars 2022.
Gunnar Gíslason D-lista vék af fundi kl. 10:45.
Fylgiskjöl
Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir
Málsnúmer 2018110047Lögð fram til kynningar fundargerð 271. fundar stjórnar Norðurorku hf. dagsett 25. febrúar 2022.
Fylgiskjöl
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2022
Málsnúmer 2022011072Lögð fram til kynningar fundargerð 36. fundar stjórnar SSNE dagsett 9. mars 2022.
Fylgiskjöl