Stjórn Akureyrarstofu - 284
- Kl. 14:00 - 17:30
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 284
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Menningarfélag Akureyrar - rekstur 2018 - 2019
Málsnúmer 2019020044Þuríður H. Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri MAk lagði fram drög að ársreikningi MAk.
Stjórn Akureyrarstofu felur sviðsstjóra að koma athugasemdum sem komu fram á fundinum til sviðsstjóra fjársýslusviðs og formanns stjórnar MAk.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2020
Málsnúmer 2019050308Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2020 lögð fram til samþykktar.
Erindi frá forstöðumanni Héraðsskjalasafnsins fylgdi með þessu erindi þar sem óskað er eftir viðbótarstöðugildi.Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við beiðni forstöðumanns Héraðsskjalasafnsins um aukið stöðugildi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðar gjaldskrárbreytingar og vísar þeim til bæjarráðs.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagða starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og vísar henni til bæjarráðs.
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista sat hjá við afgreiðslu.Listasafnið á Akureyri
Málsnúmer 2015060091Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda í Listasafninu.
Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir að sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs mæti á næsta fund stjórnar.
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Fylgiskjöl