Umhverfis- og mannvirkjaráð - 157
- Kl. 08:15 - 12:08
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 157
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Úrgangsmál - rekstur grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri
Málsnúmer 2022110167Lagt fram minnisblað dagsett 1. mars 2024 varðandi opnun tilboða í rekstur grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri.
Tvö tilboð bárust og voru þau frá Terra umhverfisþjónustu hf. á kr. 188.172.101. og frá Íslenska gámafélaginu ehf. á kr. 168.404.870.
Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Íslenska gámafélagið ehf. um rekstur grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri með þeim fyrirvara að lægstbjóðandi standist útboðskröfur.
Grenndarstöð í innbænum
Málsnúmer 2024021562Lagt fram minnisblað dagsett 1. mars 2024 varðandi færslu á grenndarstöð í innbænum.
Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.
Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur 2023
Málsnúmer 2023040089Lagt fram minnisblað dagsett 1. mars 2024 varðandi að nýta framlengingarákvæði þjónustusamnings við Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja þjónustusamning við Skógræktarfélag Eyfirðinga til tveggja ára.
Leiksvæði á Akureyri 2024
Málsnúmer 2022090091Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi gerð leiksvæða 2024.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.Nýframkvæmdir umhverfismála 2023 og 2024
Málsnúmer 2023031256Lagt fram minnisblað dagsett 1. mars 2024 varðandi verkefni í nýframkvæmdum í umhverfismálum árin 2023 og 2024.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.Metanframleiðsla á Norðurlandi
Málsnúmer 2024021572Kristín Helga Schiöth framkvæmdastjóri Líforkuvers ehf. kom og kynnti hugmyndir um framleiðslu metans á Norðurlandi og stöðu mála um ferla fyrir CAT1 úrgang á Íslandi.
Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð stefnir að því til framtíðar að nýta hreinorku á bílaflota Akureyrarbæjar að því marki sem kostur er s.s. á strætisvagna og ferliþjónustubíla. Í því ljósi telur ráðið mikilvægt að tryggð verði áframhaldandi framleiðsla á metani á Norðurlandi. Felur ráðið því sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs í samvinnu við framkvæmdastjóra Líforkuvers ehf. að kanna mögulega áframhaldandi notkun á metani.
Austurbrú - frágangur
Málsnúmer 2024021591Lögð fram til kynningar gögn varðandi hellufrágang við Austurbrú.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umferðaröryggismál - verkefni 2024
Málsnúmer 2024021574Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi verkefni í umferðaröryggismálum árið 2024.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Malbikun 2024 - viðhald og nýframkvæmdir
Málsnúmer 2024021578Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi fyrirhugaða malbikun á árinu 2024.
Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna og Eiríkur Jónasson verkefnastjóri viðhalds gatna og stíga sátu fundinn undir þessum lið.Lystigarður - aðkoma og rútustæði
Málsnúmer 2024021721Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi rútustæði við Lystigarðinn á Akureyri.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Leirustígur - hönnun og framkvæmdir
Málsnúmer 2022021084Lagðar fram teikningar til kynningar af fyrirhuguðum áningastöðum við Leirustíg.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannivirkjaráð samþykkir að verkið verði boðið út.
Ólafur Kjartansson V-lista óskar bókað:
Vegna lýsingar á stíg sjávarmegin meðfram Drottningarbraut og Leiruvegi:
Ljósin sem eru nú í timburpollum meðfram Drottningarbrautinni eru mjög gölluð sem samgöngulýsing vegna þess hve mikið af ljósinu lýsir upp á við og veldur vegfarendum glýju í augum (ofbirtu). Það er aðferð sem er ekki nothæf sem samgöngulýsing á hjólaleið.Móahverfi - gatnagerð og lagnir - áfangi 1
Málsnúmer 2023030859Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 1. mars 2024 varðandi framkvæmdir við Móahverfi.
Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Hljóðkerfi í Hofi
Málsnúmer 2024021576Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi opnun tilboða í hljóðkerfi í Hofi. Sjö tilboð bárust frá ID electronic ehf., Exton ehf., Hljóðfærahúsinu ehf., Origo hf., Atendi ehf. og Luxor tækjaleigu ehf. Tilboðin voru metin út frá útboðskröfum.
Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Atendi ehf. að upphæð kr. 29.405.843 um verkið með fyrirvara um að bjóðandi standist kröfur í útboðslýsingu.
Hlíðarfjall - afþreying
Málsnúmer 2023050643Lagt fram minnisblað dagsett 29. febrúar 2024 varðandi afþreyingu í Hlíðarfjalli.
Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sat fundinn undir þessum lið.Leikskóli í Hagahverfi
Málsnúmer 2023010583Lagt fram minnisblað dagsett 1. mars 2024 varðandi byggingu leikskóla í Hagahverfi.
Klettaborg 43 - íbúðakjarni
Málsnúmer 2017090011Lagt fram minnisblað dagsett 27. febrúar 2024 varðandi leka í kjarnanum.
Rif fasteigna 2024
Málsnúmer 2024030045Sagt frá fyrirhuguðum rifum á Pálmholti og Naustum 2.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í rif á fasteignunum.