Bæjarráð - 3695
- Kl. 08:15 - 09:33
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3695
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirvaraformaður
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Athugasemdir við samstarfssamninga Akureyrarbæjar við önnur sveitarfélög
Málsnúmer 2020080851Bréf dagsett 24. ágúst 2020 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem kynntar eru niðurstöður yfirferðar ráðuneytisins á samstarfssamningum Akureyrarbæjar við önnur sveitarfélög.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarstjóra og bæjarlögmanni að yfirfara samstarfssamningana og leggja tillögu að úrbótum fyrir bæjarráð.
Fylgiskjöl
Hafnarstræti 82 - bótakrafa vegna framkvæmda
Málsnúmer 2020050157Liður 11 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 26. ágúst 2020:
Lagt fram að nýju erindi eiganda Hafnarstrætis 82 dagsett 6. maí 2020 þar sem farið er fram á skaðabætur vegna framkvæmda á aðliggjandi lóðum undanfarin ár. Var málið áður á dagskrá skipulagsráðs 27. maí 2020. Þá er jafnframt lagt fram minnisblað Ingu Þallar Þórgnýsdóttur bæjarlögmanns dagsett 21. ágúst 2020.
Skipulagsráð vísar málinu til umfjöllunar bæjarráðs.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður, Pétur Ingi Haraldsson sviðsstjóri skipulagssviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur bæjarlögmanni og sviðsstjóra skipulagssviðs að ræða við bréfritara.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021-2024
Málsnúmer 2020030454Rætt um gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.UMSA - viðaukar 2020
Málsnúmer 2020030080Liður 11 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 21. ágúst 2020:
Lagðar fram beiðnir til bæjarráðs um viðauka vegna framkvæmda í Lundarskóla og flutnings hluta starfseminnar í Rósenborg og Íþróttahöll samtals 150 milljónir króna ásamt viðauka vegna framkvæmda Bílaklúbbs Akureyrar við ofanvatn innan og utan svæðis samtals 9,3 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samhljóða að óska eftir viðauka til bæjarráðs vegna framkvæmda í Lundarskóla að upphæð 150 milljónir króna.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir með fjórum atkvæðum að óska eftir viðauka til bæjarráðs vegna framkvæmda við ofanvatn innan og utan svæðis hjá Bílaklúbbi Akureyrar að upphæð 9,3 milljónir króna.
Unnar Jónsson S-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Meirihluti bæjarráðs samþykkir beiðni umhverfis- og mannvirkjaráðs um viðbótarfjárveitingu vegna Lundarskóla og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.
Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir með fimm samhljóða atkvæðum beiðni umhverfis- og mannvirkjaráðs um viðbótarfjárveitingu vegna framkvæmda Bílaklúbbs Akureyrar við ofanvatn innan og utan svæðis og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.Gatnamót Hörgár- og Hlíðarbrautar
Málsnúmer 2020080607Liður 3 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 21. ágúst 2020:
Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
Finnur ehf. kr. 63.510.010 101%
Nesbræður ehf. kr. 49.637.300 79%
Kostnaðaráætlun kr. 62.904.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Nesbræðra ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð staðfestir ákvörðun umhverfis- og mannvirkjaráðs með fimm samhljóða atkvæðum.
Sjafnargata, Hörgárbraut - stígar
Málsnúmer 2020080609Liður 4 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 21. ágúst 2018:
Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
Finnur ehf. kr. 32.466.660 76%
Nesbræður ehf. kr. 28.594.800 67%
Kostnaðaráætlun kr. 42.686.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Nesbræðra ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð staðfestir ákvörðun umhverfis- og mannvirkjaráðs með fimm samhljóða atkvæðum.
Jörvabyggð 14 - sala eignar
Málsnúmer 2020080610Liður 6 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 21. ágúst 2020:
Lagt til að eignin verði sett í opinbert söluferli.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að setja húsið í opinbert söluferli með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð staðfestir ákvörðun umhverfis- og mannvirkjaráðs með fimm samhljóða atkvæðum.
Sólvallagata 7 - sala
Málsnúmer 2020080611Liður 7 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 21. ágúst 2020: