Umhverfis- og mannvirkjaráð - 26
- Kl. 08:15 - 11:30
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 26
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Glerárdalur - Stjórnunar- og verndaráætlun
Málsnúmer 2018010425Lögð fram til kynningar drög að áætluninni dagsett í desember 2017.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fund umhverfis- og mannvirkjaráðs undir þessum lið.
Hamrar tjaldsvæði - tækjakaup
Málsnúmer 2018010444Lögð fram beiðni um kaup á slátturtraktor fyrir tjaldsvæðið samkvæmt ákvæðum í rekstrarsamningi við Skátafélagið Klakk.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fund umhverfis- og mannvirkjaráðs undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaup á slátturtraktor að upphæð kr. 7.500.000 samkvæmt framlögðum gögnum.
Miðbær - skortur á bílastæðum
Málsnúmer 2017120347Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar mætti á fundinn. <br />
Bæjarráð hefur þann 11. janúar 2018 vísað 6. lið úr fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 14. desember 2017 til umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Þorleifur Stefánsson og Stefán S. Ólafsson mættu í viðtalstíma bæjarfulltrúa og ræddu um mikla vöntun á bílastæðum í Miðbænum sem þarf að bæta úr hið fyrsta. Þeir reka sjúkraþjálfunina Eflingu og bentu á að þessi staða veldur viðskiptavinum þeirra miklum vandræðum. Bentu þeir á þann möguleika að fylla í efsta hluta Skátagilsins og gera þar bílastæði. Þeir telja brýnt að brugðist verði við þessum vanda sem fyrst.Umhverfis- og mannvirkjaráði felur sviðsstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.
SVA - kaup á metan strætisvögnum
Málsnúmer 2016010147Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018 um kaup á metan stætisvögnum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin samkvæmt fyrirliggjandi samningi.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - gjaldskrár 2018
Málsnúmer 2017110168Lagðar fram tillögur að óbreyttum gjaldskrám Umhverfismiðstöðvar fyrir árið 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir óbreytta gjaldskrá fyrir árið 2018 og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði.
Snjómokstur og hálkuvarnir - aðgerðarhópur
Málsnúmer 2017010549Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar auknu þjónustustigi í snjómokstri kringum skóla og uppfærslu á upplýsingarvef um snjómokstur í bæjarlandinu.
Strandgata 6 - framtíðarsýn
Málsnúmer 2018010460Lögð fram skýrsla ástandsskoðunar hússins dagsett 24. janúar 2018 og minnisblað frá Umhverfismiðstöð dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu og leggja tillögur fyrir ráðið í byrjun apríl 2018.
Umhverfis- og mannvirkjasvið - húsnæðismál
Málsnúmer 2017050072Rætt um húsnæðismál Umhverfismiðstöðvar á Rangárvöllum.
Umhverfis- og mannvirkjasvið felur sviðsstjóra að ganga til samninga við Norðurorku um framtíðarsýn í húsnæðismálum Umhverfismiðstöðvar á Rangárvöllum.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar vék af fundi.
Ráðhús - breytingar á 4. hæð
Málsnúmer 2018010435Kynntar tillögur að breytingum dagsettar 30. janúar 2018.
Fasteignir Akureyrarbæjar - útboð á úttektum brunaviðvörunarkerfa
Málsnúmer 2016030012Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samningurinn við Nortek verði framlengdur um eitt ár í samræmi við ákvæði núgildandi samnings.
Bílaklúbbur Akureyrar - drenun svæðis
Málsnúmer 2018010434Lagt fram minnisblað dagsett 29. janúar 2018.
Jaðar - umhverfismat á svæðinu
Málsnúmer 2018010445Lagt fram minnisblað dagsett 31. janúar 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í umhverfismat á svæðinu og felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu.
Þarfagreining vegna 50 m innisundlaugar
Málsnúmer 2018010304Tilnefning fulltrúa ráðsins í verkefnisliðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tilnefnir Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B lista sem fulltrúa ráðsins í verkefnisliðinu.
Sundlaug Akureyrar - sundlaugargarður
Málsnúmer 2017100387Kynning á framkvæmdum í sundlaugargarðinum.
Hermann Ingi Arason V-lista vék af fundi kl. 11:20.