Fræðsluráð - 7
- Kl. 13:30 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 7
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Baldvin Valdemarsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Giljaskóli - lýsing og umferðarmál
Málsnúmer 2016120149Erindi sem barst í viðtalstíma bæjarfulltrúa þann 23. mars 2017 um umferðaröryggi við Giljaskóla.
Fræðsluráð vill beina þeim tilmælum til umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar að bregðast við þeim tillögum um viðeigandi lausnir við leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar sem fyrir liggja, til að tryggja öryggi barna við skólana sem allra mest. Vísað er í því tilliti til úttektar sem unnin var af fyrirtækinu Eflu árið 2015 um málið.
Þá minnir fræðsluráð á að enn á eftir að gera úttekt á umferðaröryggi við leikskóla bæjarins.Rekstur fræðslumála 2017
Málsnúmer 2017040126Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á fræðslusviði fór yfir rekstur fræðslumála janúar - mars 2017.
Upplýsingar um dagvistunar- og leikskólamál
Málsnúmer 2017010168Sesselja Sigurðardóttir og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúar fóru yfir stöðu mála í innritun leikskólabarna fyrir haustið 2017.
Ljóst er að um 40 barna aukning hefur orðið í umsóknum um leikskólapláss fram yfir það sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Um er að ræða börn fædd á árunum 2012-2015 sem eru að flytja í bæinn.Búið er að bjóða öllum börnum sem fædd eru 2012-2015 leikskólapláss og þeim börnum sem fædd eru í janúar 2016. Áfram er verið að vinna að innritun barna sem fædd eru síðar.
Fækkun leikskólarýma
Málsnúmer 2017040055Erindi barst símleiðis í viðtalstíma bæjarfulltrúa þann 6. apríl sl. frá Jóhanni Gunnarssyni þar sem hann gerði athugasemd við að verið sé að fækka leikskólarýmum þegar það vantar í raun pláss fyrir börn í leikskóla.
Þegar leikskólaplássum var fækkað var gert ráð fyrir að hægt yrði að innrita sama aldurshóp og frá árinu áður. Óvænt fjölgun leikskólabarna á Akureyri síðustu mánuði hefur haft áhrif á þá stöðu (sjá lið. 3).
Vegvísir við bókun í kjarasamningi grunnskólakennara
Málsnúmer 2017010222Kristrún Lind Birgisdóttir verkefnisstjóri kom á fundinn og fór yfir stöðu á vinnu við bókun í kjarasamningi grunnskólakennara.
Vinnan gengur vel og samkvæmt áætlun.Kennslustundaúthlutun til grunnskóla
Málsnúmer 2017030172Ljóst er að bæði leik- og grunnskólabörnum hefur fjölgað umfram það sem áætlanir gera ráð fyrir.
Þá hefur mat á sérkennsluþörf vaxið verulega frá því það var gert við undirbúning síðustu fjárhagsáætlunar. Þetta þýðir að sú tímaúthlutun sem áætluð hafði verið fyrir haustið 2017 í grunnskólum nægir ekki. Þá er þörf fyrir meira kennslustundamagn til að mæta sérúrræðum.
Nauðsynlegt er að bregðast við og óska eftir aukningu í úthlutun á kennslukvóta.Kynnt.