Skólanefnd - 11
- Kl. 14:00 - 16:30
- Hlíðarskóli
- Fundur nr. 11
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Bryndís Valgarðsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Endurskoðun á starfsemi Hlíðarskóla
Málsnúmer 2013120097Fyrir fundinn voru lögð drög að stefnuskrá fyrir Hlíðarskóla. Ásamt drögunum fylgdu hugmyndir um vinnubrögð í grunnskólum áður en sótt er um í Hlíðarskóla og kostnaðarmat á þeim framkvæmdum sem til þarf ef uppfylla á óskir um aðbúnað.

Skólanefnd óskar eftir umsögn um skýrsluna frá grunnskólunum og fjölskyldudeild.

Gjaldskrá vegna daggæslu
Málsnúmer 2014070182Fyrir fundinn var lögð tillaga um að gjaldskrá vegna daggæslu verði óbreytt þrátt fyrir kostnaðarauka í kjölfar breytinga á kjarasamningum sem hámarksgjald vegna daggæslu tekur mið af samkvæmt gildandi samningum við dagforeldra. Reikna má með því að aukinn rekstrarkostnaður á þessu ári vegna þessa verði nálægt 5 milljónum kr.

Meirihluti skólanefndar samþykkir fyrirliggjandi tillögu fyrir sitt leyti og óskar eftir viðbótarfjárveitingu að upphæð kr. 5.000.000 til að mæta auknum kostnaði á árinu.

Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.

Fundaáætlun skólanefndar 2014
Málsnúmer 2013120095Fyrir fundinn var lögð tillaga að fundaáætlun skólanefndar fyrir ágúst til desember 2014.

Skólanefnd samþykkir tillöguna.

Fjárhagsáætlun 2015 - skólanefnd
Málsnúmer 2014070179Fyrir fundinn var lagt fram til kynningar fjárhagsáætlunarferli á árinu 2014.

Langtímaáætlun - fræðslumál
Málsnúmer 2013020252Á fundinum var farið yfir markmið langtímaáætlunar skólanefndar.

Skólanefnd samþykkir að fresta þessum lið til næsta fundar.

Starfsáætlun 2015 - skólanefnd
Málsnúmer 2014070180Fyrir fundinn var lögð fram til kynningar tillaga að gerð starfsáætlunar skólanefndar 2015.

Málþing um skólamál 8. september 2014
Málsnúmer 2014050024Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 6. maí 2014 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem tilkynnt er um að málþing sambandsins um skólamál verður haldið 8. september 2014. Áhersla þingsins verður á árangur skólastarfs með fókus á námsárangur.

Minni ásókn fagfólks í störf í leikskólum
Málsnúmer 2014070010Erindi dagsett 1. júlí 2014 frá Guðbjörgu Sesselju Jónsdóttur f.h. samtaka sjálfstæðra skóla. Þar er lýst áhyggjum af því að færra fagfólk sækir í störf í leikskólum. Í ljósi þess er bent á að starfsheitið leikskólaliði er ekki talið með fagfólki í öllum sveitarfélögum þegar gefið er upp hlutfall fagfólks í leikskólunum. Óskað er eftir því að sveitarfélög samræmi túlkun sína á því hvaða starfsheiti falla undir hugtakið fagfólk og fari þá eftir túlkun Reykjavíkurborgar og Hagstofu Íslands þar sem starfsheitið leikskólaliði er talið með fagfólki.

Skólanefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar.