Skólanefnd - 8
- Kl. 13:30 - 15:48
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 8
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Barnasáttmálinn
Málsnúmer 2015040236Kynning á barnasáttmála og ferli við innleiðingu hans.
Vegna veikinda er þessum dagskrárlið frestað og verður hann tekinn fyrir á næsta fundi skólanefndar.
Rekstur fræðslumála 2015
Málsnúmer 2015040087Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir þriggja mánaða rekstrarstöðu fræðslumála.
Hljóðvist í leikskólum - tilraunaverkefni
Málsnúmer 2015040233Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi kynnti verkefnið. Um er að ræða tilraunaverkefni á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga til að bæta hljóðvist í leikskólum.
Markmið tilraunaverkefnisins er að kortleggja hávaða á leikskólum í einu sveitarfélagi, sjá út eðli hans og hegðunarmunstur þ.e.a.s. hvar, frá hverju/hverjum hann stafar, hvenær hann á sér stað og hvernig. Út frá þeim upplýsingum yrðu fundnar leiðir til að draga úr hávaðanum, svo sem með umbótum á húsnæði, húsbúnaði, leikföngum/leiktækjum, fræðslu til starfsmanna og endurskoðun á starfsháttum.Skólanefnd samþykkir að taka þátt í verkefninu. Verkefnisstjórn verður í höndum Hrafnhildar G. Sigurðardóttur leikskólafulltrúa á skóladeild.
Starfsáætlanir leik- og grunnskóla 2015-2016 - skóladagatöl
Málsnúmer 2015040088Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista vék af fundi kl. 15:30. <br />
Skóladagatöl leik- og grunnskóla lögð fyrir.
Skólanefnd samþykkir framlögð skóladagatöl.