Velferðarráð - 1211
- Kl. 14:00 - 17:13
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1211
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Karólína GunnarsdóttirÞjónustustjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Kolbeinn Aðalsteinssonfundarritari
Forgangur í leiguhúsnæði 2015 - áfrýjanir
Málsnúmer 2015010024Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti áfrýjun vegna forgangs á biðlista eftir leiguíbúð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Fjárhagserindi 2015 - áfrýjanir
Málsnúmer 2015010023Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2015
Málsnúmer 2015010173Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri kynntu málefni einstaklings.
Málefni einstaklinga eru vistuð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Samband íslenskra sveitarfélaga - félagsþjónustunefnd
Málsnúmer 2012020043Lagðar fram til kynningar fundargerðir 23., 24. og 25. fundar félagsþjónustunefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fjölskyldudeild - ársskýrslur 2013 - 2015
Málsnúmer 2015060133Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri lagði fram til kynningar ársskýrslu fjölskyldudeildar fyrir árið 2014.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Fundaáætlun velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Lögð fram að nýju fundaáæltun velferðarráðs fyrir haustið 2015.
Velferðarráð samþykkir fundaáætlunina.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2015
Málsnúmer 2015010045Framkvæmdastjórar ÖA Halldór Sigurður Guðmundsson, búsetudeildar Soffía Lárusdóttir og fjölskyldudeildar Guðrún Ólafía Sigurðardóttir lögðu fram og kynntu rekstraryfirlit fyrir fyrstu fimm mánuði ársins.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Útskriftarteymi Sjúkrahússins á Akureyri - alvarlegt ástand við þjónustu aldraðra
Málsnúmer 2015060062Lagt fram afrit bréfs dagsett 29. maí 2015 frá útskriftarteymi SAk sem beint er til stjórnar Sjúkrahússins á Akureyri, heilbrigðisráðherra og velferðarráðs Akureyrar.
Lagt fram til kynningar.
Velferðarráð tekur undir áherslur og niðurstöðu bréfsins um mikilvægi markviss samstarfs þeirra þjónustueininga sem koma að málefnum aldraðs fólks. Hafa ber í huga skyldur ríkis annars vegar og sveitafélaga hins vegar vegna þjónustu við aldrað fólk.CONNECT - verkefnið
Málsnúmer 2014060231Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar greindi frá lausnum á sviði velferðartækni sem kynntar voru í nýafstaðinni vinabæjaheimsókn til Västerås í Svíþjóð. Västerås er eins og Akureyri þátttakandi í Connect verkefningu.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Velferðaráð - vinabæjasamskipti 2015
Málsnúmer 2015040033Jóhann Gunnar Sigmarsson varaformaður velferðarráðs og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sögðu frá vinabæjamóti sem haldið var í Västerås í Svíþjóð 10.- 12. júní 2015.
Velferðarráð þakkar kynninguna.
Þórunnarstræti 99 - heitur pottur
Málsnúmer 2015050177Búsetudeild óskar eftir fjárveitingu að upphæð 5 milljónir kr. til að stækka pall við húsnæði skammtíma- og skólavistunar, Þórunnarstræti 99.
Einnig er óskað eftir 1,2 milljónum kr. til að setja upp geymsluskúr fyrir starfsemina á lóðinni. Áætluð hækkun rekstrarkostnaðar á mánuði næstu 10 árin eru kr. 53 þúsund.Velferðarráð þakkar velvilja í garð notenda í skammtíma- og skólavistuninni.
Velferðarráð getur ekki mætt kostnaðinum á þessu ári og vísar kostnaðinum til fjárhagsáætlunar 2016.
Velferðarráð felur búsetudeild að vinna málið áfram í samvinnu við Fasteignir Akureyrarbæjar.Búsetudeild - ársskýrsla 2014
Málsnúmer 2015060167Valur Sæmundsson V-lista og Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista yfirgáfu fundinn kl. 16:58. <br />
Ársskýrsla búsetudeildar 2014 lögð fram til kynningar.