Velferðarráð - 1268
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1268
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Inda Björk Gunnarsdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Steinunn Benna Hreiðarsdóttirfundarritari
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2017
Málsnúmer 2017010088Lagt fram til kynningar yfirlit yfir 10 mánaða rekstur allra málaflokka.
Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs, Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu fjölskyldusviðs og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.Beiðni um hjálp vegna húsnæðismála
Málsnúmer 2017120155Lagt fram erindi frá einstaklingi um hjálp í húsnæðismálum.
Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi fjölskyldusviðs og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Afgreiðsla erindisins er bókuð í trúnarbók velferðarráðs.
Forvarnir - samstarf - eftirlit
Málsnúmer 2017110273Farið yfir sameiginlegan fund velferðarráðs og frístundaráðs sem haldinn var 30. nóvember sl.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldusviði sátu fundinn undir þessum lið.Afskriftir lána 2014-2020
Málsnúmer 2014120067Lögð fram tillaga fjölskyldusviðs að afskriftum lána í fjárhagsaðstoð. Um er að ræða lán að upphæð kr. 1.268.534.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Skipulagsbreytingar á búsetusviði
Málsnúmer 2017100443Lagt fram minnisblað um fyrirhugaða samþættingu heimaþjónustu Stoðar og Gránufélagsteymis.
Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetudeildar og Hlynur Már Erlingsson forstöðumaður heimaþjónustunnar Stoðar sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð lýsir yfir ánægju með fyrirhugaða samþættingu.
Flutningur á starfsstöð heimaþjónustu A
Málsnúmer 2017120226Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður heimaþjónustu A kynnti flutning starfsstöðvar heimaþjónustu A og aðseturs iðjuþjálfa í Víðilund 22.
Áfrýjun synjunar um félagslega heimaþjónustu
Málsnúmer 2014100040Tekin var fyrir áfrýjun í máli varðandi synjun um heimaþjónustu.
Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður heimaþjónustu A sat fundinn undir þessum lið.Afgreiðsla erindisins er bókuð í trúnarbók velferðarráðs.
Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi
Málsnúmer 2017120160Lagt fram erindi frá Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á Norðurlandi eystra dagsett 8. desember sl. um miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.
Velferðarráð tekur undir mat lögreglustjóra um mikilvægi þess að koma á fót miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Akureyri.
Samningar um öryggisgæslu 2017
Málsnúmer 2017080018Lögð fram drög að samningi Akureyrarkaupstaðar, velferðarráðuneytis og Greiningarstöðvar ríkisins um öryggisgæslu sem gildir fyrir árið 2017 ásamt útreikningum á kostnaðarhlutdeild aðila.