Bæjarstjórn - 3388
- Kl. 16:00 -
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3388
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonforseti bæjarstjórnar
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Logi Már Einarsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Edward Hákon Huijbens
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Njáll Trausti Friðbertsson
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Bæjarstjórn - ósk um tímabundið leyfi
Málsnúmer 2015030233Lagt fram erindi dagsett 25. febrúar 2016 frá Margréti Kristínu Helgadóttur bæjarfulltrúa Æ-lista Bjartrar framtíðar, þar sem hún óskar eftir tímabundnu leyfi frá störfum í bæjarstjórn frá 2. mars 2016 - 2. mars 2017.
Bæjarstjórn samþykkir beiðni Margrétar Kristínar Helgadóttur með 11 samhljóða atkvæðum.
Bæjarstjórn - lausn frá störfum varabæjarfulltrúa
Málsnúmer 2016020239Lagt fram erindi dagsett 25. febrúar 2016 frá Áshildi Hlín Valtýsdóttur varabæjarfulltrúa Æ-lista Bjartrar framtíðar, þar sem hún óskar eftir lausn frá störfum varabæjarfulltrúa í bæjarstjórn frá 2. mars 2016 til loka kjörtímabils.
Bæjarstjórn samþykkir beiðni Áshildar Hlínar Valtýsdóttur með 11 samhljóða atkvæðum.
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga Æ-lista Bjartrar framtíðar um breytingar í bæjarráði. Preben Jón Pétursson tekur sæti aðalmanns í stað Margrétar Kristínar Helgadóttur.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Starfsáætlun og stefnuumræða nefnda 2016 - atvinnumálanefnd
Málsnúmer 2016010065Starfsáætlun og stefnuumræða atvinnumálanefndar.
Matthías Rögnvaldsson bæjarfulltrúi og formaður atvinnumálanefndar gerði grein fyrir starfsáætlun nefndarinnar.
Almennar umræður.Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2010090095Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.