Stjórn Akureyrarstofu - 244
- Kl. 16:15 - 18:15
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 244
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Iceland Airwaves 2018 og 2019 - styrkbeiðni
Málsnúmer 2018010163Erindi dagsett 6. desember 2017 frá Grími Atlasyni f.h. IA tónlistarhátíðar ehf þar sem óskað er eftir stuðningi við að halda tónlistarhátíðina Iceland Airwaves á Akureyri árin 2018 og 2019. Hátíðin var haldin í fyrsta skipti á Akureyri í nóvember 2017 og þótti heppnast vel. Áætlað er að heildarfjöldi gesta og blaðamanna hafi þá verið um 900.
Málið lagt fram til kynningar. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál - endurnýjun 2018
Málsnúmer 2017050182Lögð fram drög að samningi við ríkið um menningarmál.
Menningarfélag Akureyrar - endurnýjun saminga MH, LA og SN
Málsnúmer 2016120092Lögð fram drög að nýjum samningi við Menningarfélag Akureyrar. Samningurinn er til þriggja ára.
Mótun upplýsingastefnu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015110167Á fundi bæjarráðs þann 11. janúar sl. var umræða um mótun upplýsingastefnu Akureyrarbæjar. Bæjarráð óskar eftir því að Akureyrarstofa leiði vinnu við mótun upplýsingastefnu fyrir Akureyrarbæ.
Stjórn Akureyrarstofu leggur til að einn fulltrúi frá hverju sviði Akureyrarbæjar komi að vinnu við mótun upplýsingastefnunnar. Fyrstu drög að stefnunni skulu lögð fyrir stjórn Akureyrarstofu 1. apríl nk.
Heimsókn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands til Færeyja
Málsnúmer 2018010237Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fer til Færeyja nú í byrjun febrúar og spilar á tónleikum með Færeyjasinfóníunni. Farið verður fimmtudaginn 1. febrúar og komið til baka 5. febrúar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að senda fulltrúa stjórnar með í för.
Minjasafnið á Akureyri - ársreikningur 2016
Málsnúmer 2018010160Ársreikningur Minjasafnsins 2016 lagður fram til kynningar.
Stjórn Akureyrarstofu gerir athugasemdir við það hversu seint ársreikningurinn berst og hvetur stjórn Minjasafnsins til að skila ársreikningum í samræmi við samþykktir safnsins. Jafnframt felur stjórn Akureyrarstofu starfsmönnum að afla frekari gagna vegna ábendinga endurskoðanda.
Fylgiskjöl