Kjarasamninganefnd - 1
- Kl. 10:15 - 11:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Hjalti Ómar Ágústsson
- Hallgrímur Guðmundsson
- Halla Margrét Tryggvadóttirfundarritari
TV einingar - reglur 2013
Málsnúmer 2013110119Tekið fyrir að nýju. Á fundi kjarasamninganefndar 25. nóvember 2013 var bókað svohljóðandi:\nTveir fulltrúar úr matshópi um úthlutun TV eininga vegna verkefna- og hæfni mættu á fund nefndarinnar og kynntu tillögur að breytingum á úthlutunarreglum, umsóknar- og umsagnarformi. Í matshópnum eru Katrín Björg Ríkharðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður sem sátu fund nefndarinnar, en einnig er í hópnum Ögmundur Knútsson forseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.\nSamþykkt að vinna að endurskoðun á reglum um úthlutun TV eininga í samræmi við umræður á fundinum.\nKatrín Björg Ríkharðsdóttir mætti á fund kjarasamninganefndar og kynnti tillögur matshópsins að breytingum á reglum um úthlutun, umsóknarformi og umsagnarformi.

Kjarasamninganefnd þakkar matshópnum fyrir vel unnin störf og samþykkir fyrirliggjandi tillögur að breytingum.

TV einingar - úthlutun haustið 2013
Málsnúmer 2013100205Tekin fyrir að nýju umsókn um TV einingar vegna verkefna og hæfni sem var á dagskrá fundar kjarasamninganefndar 25. nóvember 2013.

Kjarasamninganefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að úthlutun.

TV einingar - umsóknir v/markaðs- og samkeppnisaðstæðna
Málsnúmer 2013100256Tekið fyrir að nýju erindi sem frestað var á fundi kjarasamninganefndar 25. nóvember 2013: \nKynntar til umfjöllunar og afgreiðslu, umsóknir um TV einingar vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna frá hjúkrunarfræðingum á Heilsugæslustöðinni á Akureyri.\nAfgreiðslu frestað til næsta fundar.

Afgreiðslu frestað þar sem ekki liggur fyrir niðurstaða í viðræðum Akureyrarbæjar og Sjúkratrygginga Íslands um rekstur Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.

Sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla
Málsnúmer 2014020004Kynnt tillaga að nýju starfi forstöðumanns á fjölskyldudeild sem samþykkt var í félagsmálaráði 13. febrúar 2014.

Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að nýtt starf forstöðumanns sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla á fjölskyldudeild verði skilgreint sem forstöðumannsstarf. Lagt er til að greitt verði stjórnendaálag vegna starfsins skv. reglum Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags.

Yfirvinna starfsmanna Akureyrarbæjar árið 2013
Málsnúmer 2014020087Umræður um yfirvinnu starfsmanna Akureyrarbæjar árið 2013.
Velferðarstefna - kjarasamninganefnd
Málsnúmer 2014020043Í Velferðarstefnu Akureyrarbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn 5. nóvember 2013 er eftirfarandi stefnumörkun:\nHalda yfirvinnu innan hóflegra marka af vinnuverndar- og fjölskylduástæðum og fara eftir gildandi reglum um yfirvinnu.\nÁbyrgð: Kjarasamninganefnd, stjórnendur og starfsmenn.

Umræður um gildandi reglur um yfirvinnu hjá Akureyrarbæ. Afgreiðslu frestað.