Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 521
- Kl. 13:00 - 15:00
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 521
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Ólafur Jakobsson
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Hjallatún 1-11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi
Málsnúmer BN060759Erindi dagsett 4. desember 2014 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Trétaks ehf., kt 551087-1239, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsinu Hjallatúni 1-11. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Sporatún 21-29 - breyting inni
Málsnúmer BN060524Erindi dagsett 9. desember 2014 þar sem Magnús Guðjónsson f.h. Fjölnis hf., kt. 530289-2069, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Sporatúni 21-29. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Þingvallastræti 36 - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2014100162Erindi dagsett 8. desember 2014 þar sem Hörður Sverrisson sækir um leyfi fyrir garðskúr við Þingvallastræti 36. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem staðsetning garðskúrsins skapar brunahættu vegna nálægðar gagnvart núverandi íbúðarhúsi á lóðinni.