Umhverfis- og mannvirkjaráð - 37
- Kl. 08:15 - 09:40
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 37
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jóhann Jónsson
- Jóhanna Sólrún Norðfjörð
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
Hrísey - efnisvinnsla
Málsnúmer 2018070376Lögð fram útboðsgögn dagsett í júlí 2018 vegna útboðs á efnisvinnslu í Hrísey.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á verkinu.
Naustahverfi 7. áfangi - Hagar
Málsnúmer 2017080054Lögð fram stöðuskýrsla 4 dagsett 9. júlí 2018.
Drottningarbrautarstígur - Leikhúsbrú
Málsnúmer 2017100322Rætt um vígsluna á brúnni.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun á dúk í laugarkari
Málsnúmer 2016060053Lögð fram tilboð í endurnýjun á sundlaugardúk í laugarkari 1 í sundlauginni.
Þrjú verðtilboð bárust:
Seglagerðin ehf kr. 13.500.000
Fagráð ehf kr. 17.044.900
Gísli Bogi Jóhannesson GIBO kr. 20.544.900 frávikstilboð með flísalögn.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda Seglagerðina ehf.
Grímsey - vistvæn orkuvinnsla
Málsnúmer 2018070391Lögð fram til kynningar greinargerð dagsett 5. júlí 2018 frá JTC Consulting engineers og Brothættra byggða um vistvæna orkuvinnslu í Grímsey.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar hugmyndum um vistvæna orkuvinnslu í Grímsey sem falla vel að umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrarbæjar.
Grímsey tjaldsvæði - hávaði frá rafstöð
Málsnúmer 2018070389Rætt um hávaða frá rafstöð við nýtt tjaldsvæði í Grímsey hjá sundlauginni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Múrbrot - framtíðarsýn
Málsnúmer 2018070375Rætt um framtíðarsýn á múrbroti í bæjarlandinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur forstöðumanni umhverfis- og sorpmála að vinna áfram tillögur að efnisvinnslu á múrbroti og gleri og leggja fyrir ráðið í haust.
Grassláttur og hirðing 2018
Málsnúmer 2018050178Lögð fram til kynningar framvinduskýrsla fyrir maí og júní vegna grassláttar 2018.