Umhverfis- og mannvirkjaráð - 14
- Kl. 08:15 - 09:50
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 14
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
- Kristín Sigurðardóttirfundarritari
Hörgárbrautarstígur við Sjónarhól
Málsnúmer 2017070050Lagt fram minnisblað dagsett 10.07.2017 frá umhverfis- og mannvirkjasviði ásamt því að Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku kom á fundinn og kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir við stígssvæðið.
Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku sat fundinn undir þessum lið.Vegagerðin - niðurfelling vega af vegaskrá
Málsnúmer 2012080074Lagt fram til kynningar bréf dags. 25. apríl 2016 frá Vegagerðinni varðandi niðurfellingu vega af vegaskrá ásamt minnisblaði frá umhverfis- og mannvirkjasviði dagsettu 17. maí 2017 vegna málsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar þessu fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.
Heimsókn til Grímseyjar
Málsnúmer 2017070045Lagt fram til kynningar minnisblað dags 12.07.2017 vegna heimsóknar Guðríðar Friðriksdóttur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs, Steindórs Ívars Ívarssonar forstöðumanns viðhalds, Jónasar Vigfússonar forstöðumanns Umhverfismiðstöðvar og Jóns Birgis Gunnlaugssonar verkefnastjóra umhverfismála til Grímseyjar.
Sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar falið að vinna áfram í málinu.
Rósenborg - endurbætur vegna stjórnsýslubreytinga
Málsnúmer 2017060095Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 12.07.2017 frá umhverfis- og mannvirkjasviði um endurbætur á Rósenborg vegna stjórnsýslubreytinga.