Bæjarráð - 3591
- Kl. 08:15 - 11:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3591
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Preben Jón Péturssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirfundarritari
Stjórnsýslubreytingar - úttekt
Málsnúmer 2017110159Lögð fram niðurstaða úttektar á stjórnsýslubreytingum sem gerðar voru á stjórnsýslu Akureyrarbæjar unnin af Róberti Ragnarssyni ráðgjafa.
Róbert Ragnarsson ráðgjafi fór yfir niðurstöðurnar.
Eva Hrund Einarsdóttir bæjarfulltrúi D-lista sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð þakkar Róberti fyrir kynninguna og felur bæjarstjóra að fylgja frekar eftir stjórnsýslubreytingunum í samræmi við niðurstöðu úttektarinnar.
Fylgiskjöl
Brothættar byggðir
Málsnúmer 2015070054Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri Brothættra byggða í Grímsey og Hrísey fór yfir stöðu mála.
Hrísey - byggðafesta
Málsnúmer 2016030153Erindi dagsett 5. mars 2018 þar sem óskað er umsagnar Akureyrarbæjar um viðauka við samkomulag Byggðastofnunar og K&G ehf dagsett 30. mars 2016 um aukna byggðafestu í Hrísey.
Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri Brothættra byggða í Grímsey og Hrísey sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti.
Kríunes - kaup eða leiga á jörðinni Kríunesi - landnr. 152113
Málsnúmer 2018030124Erindi dagsett 7. mars 2018 frá Guðna Þór Þrándarsyni þar sem hann óskar eftir upplýsingum um hvað það myndi kosta að kaupa eða leigja jörðina Kríunes.
Helga Íris Ingólfsdóttir verkefnastjóri Brothættra byggða í Grímsey og Hrísey og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að ræða við bréfritara um leigusamning.
Sérstakur húsnæðisstuðningur - reglur
Málsnúmer 20161200214. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 7. mars 2018:
Lagðar fyrir að nýju reglur um sérstakan húsnæðisstuðning, málið var áður á dagskrá velferðarráðs þann 21. febrúar sl.
Magnús Valur Axelsson húsnæðisfulltrúi lagði fram minnisblað sitt dagsett 5. mars 2018.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning og þann kostnaðarauka sem í þeim felst fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti með gildistíma frá og með 1. mars 2018 og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.
Skjalastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2012100192Lögð fram drög að endurskoðaðri skjalastefnu Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir framlagða endurskoðun á skjalastefnu og vísar henni til samþykktar í bæjarstjórn.
Norðurorka hf - aðalfundur 2018
Málsnúmer 2018030221Erindi dagsett 9. mars 2018 frá stjórn Norðurorku hf þar sem boðað er til aðalfundar Norðurorku hf 6. apríl nk. kl. 14:00 í Hofi, Akureyri.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundur 2018
Málsnúmer 2018030117Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf, þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 23. mars 2018 kl. 15:00 á Grand Hótel Reykjavík. Vakin er athygli á því að rétt til að sækja aðalfund eiga allir sveitarstjórnarmenn.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 303. fundar stjórnar Eyþings dagsett 2. mars 2018. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir
Tillaga til þingsályktunar um aðgengi að stafrænum smiðjum, 236. mál
Málsnúmer 2018030108Lagt fram til kynningar erindi dagsett 6. mars 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um aðgengi að stafrænum smiðjum, 236. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0332.htmlFrumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), 178. mál
Málsnúmer 2018030093Lagt fram til kynningar erindi dagsett 6. mars 2018 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), 178. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. apríl nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0252.htmlTillaga til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 200. mál
Málsnúmer 2018030178Lagt fram til kynningar erindi dagsett 8. mars 2018 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 200. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0279.htmlTillaga til þingsályktunar um almenn hegningarlög (bann við umskurði drengja), 114. mál
Málsnúmer 2018030234Lagt fram til kynningar erindi dagsett 12. mars 2018 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um almenn hegningarlög (bann við umskurði drengja), 114. mál 2018.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 28. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/148/s/0183.html