Kjarasamninganefnd - 2
- Kl. 15:00 - 16:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Gunnar Gíslason
Stjórnendaálag deildarstjóra
Málsnúmer 2017010004Sigíður Huld Jónsdóttir S-lista boðaði forföll. <br />
Bæjarráð bókaði á fundi sínum 22. desember 2016:
Bæjarráð samþykkir að fela kjarasamninganefnd að vinna tillögu að endurskoðuðum reglum um greiðslu stjórnendaálags hjá Akureyrarbæ. Tillaga að
endurskoðuðum reglum skal lögð fram til afgreiðslu á fundi bæjarráðs 12. janúar nk.
Umfjöllun um tillögu að nýjum reglum um stjórnendaálag deildarstjóra.Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna áfram að málinu.
Stjórnendaálag forstöðumanna
Málsnúmer 2017010057Bæjarráð bókaði á fundi sínum 22. desember 2016:
Bæjarráð samþykkir að fela kjarasamninganefnd að vinna tillögu að endurskoðuðum reglum um greiðslu stjórnendaálags hjá Akureyrarbæ. Tillaga að
endurskoðuðum reglum skal lögð fram til afgreiðslu á fundi bæjarráðs 12. janúar nk.
Unnið að endurskoðun á reglum um stjórnendaálag forstöðumanna hjá Akureyrarbæ.Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna áfram að málinu.
Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga, launaröðun
Málsnúmer 2017010058Umfjöllun um samanburð á launaröðun félagsmanna í Kjarafélagi viðskipta- og hagfræðinga og Fræðagarði sem gegna störfum sem taka viðmið við samhljóma skilgreiningar starfa í kjarasamningum SNS og viðkomandi félaga.
Kjarasamninganefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð að launaröðun starfa félagsmanna í Kjarafélagi viðskipta- og hagfræðinga verði jöfnuð við launaröðun starfa í Fræðagarði eins og hún er 1. janúar 2017 með þeim fyrirvara að samkomulag náist við stjórnendur í KVH um afsal fastra greiðslna. Heildarlaun stjórnenda skulu ekki lækka við þessa aðgerð.