Stjórn Akureyrarstofu - 81
- Kl. 16:00 - 18:30
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 81
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Jóhann Jónsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands - skipun fulltrúa í stjórn
Málsnúmer 2010090019Stjórn Akureyrarstofu skipar 3 fulltrúa í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Dömulegir dekurdagar 2010 - styrkbeiðni
Málsnúmer 2010090151Erindi, ódags., móttekið 5. október 2010 frá Vilborgu Jóhannsdóttur f.h. aðstandenda verkefnisins Dömulegir dekurdagar, þar sem óskað er eftir framlagi frá Akureyrarstofu til verkefnisins.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 80.000 til verkefnisins.

Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa
Málsnúmer 2009090017Stjórnsýslunefnd hefur óskað eftir því að fastanefndir hjá Akureyrarbæ taki til skoðunar drög að Siðareglum fyrir kjörna fulltrúa og skili athugasemdur fyrir 15. nóvember nk.\nLagt fram til kynningar og verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi.

Point Dansstúdío ehf - styrkbeiðni
Málsnúmer 2010100016Erindi dags. 4. október 2010 frá Sigyn Blöndal f.h. Point Dansstúdíó ehf, þar sem sótt er um niðurfellingu á leigu í Ketilhúsinu vegna jólasýninga 6., 7., 8. og 9. desember nk.

Þar sem fjárheimildir ársins leyfa ekki frekari styrki af þessu tagi getur stjórn Akureyrarstofu ekki orðið við erindinu.

Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar - Akureyri 2010
Málsnúmer 2010030175Umsókn dags. 16. ágúst 2010 frá Jónu Lovísu Jónsdóttur fh. stjórnar ÆSKÞ, þar sem óskað er eftir styrk á móti húsaleigu í Íþróttahöllinni, en gert er ráð fyrir að húsaleigan nemi kr. 460.000.

Þar sem fjárheimildir ársins leyfa ekki frekari styrki af þessu tagi getur stjórn Akureyrarstofu ekki orðið við erindinu.

Fjárhagsáætlun 2011 - stjórn Akureyrarstofu
Málsnúmer 2010100024Halla Björk Reynisdóttir formaður stjórnar og Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu hafa að undanförnu hitt forsvarsmenn menningarstofnana í bænum, bæði þeirra sem bærinn rekur og hinna sem fá samningsbundnar greiðslur frá Akureyrarbæ. Á þessum fundum var farið yfir þá hagræðingu og sparnað sem nauðsynlegt er að ná fram í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Farið yfir möguleika og hugmyndir en vinnunni verður framhaldið á næsta fundi stjórnarinnar.