Fræðsluráð - 23
- Kl. 13:30 - 14:25
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 23
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Hildur Betty Kristjánsdóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Brúum bilið - vinnuhópur
Málsnúmer 2018120163Brúum bilið er verkefni sem hefur að markmiði að vinna að lausnum og leiðum til að brúa bilið frá lokum fæðingarorlofs þar til barn kemst til dagforeldris eða í leikskóla.
Fræðsluráð samþykkir að stofna vinnuhóp í tengslum við verkefnið. Skipað verður í hópinn á næsta fundi ráðsins og honum sett erindisbréf.
Þriggja mánaða skýrsla - fræðslusvið
Málsnúmer 2018100120Yfirlit um stöðu yfirvinnu innan fræðslumála lagt fram til kynningar.
Áskorun frá stjórnendum grunnskóla Akureyrarkaupstaðar
Málsnúmer 2018050164Svar sviðsstjóra við erindi frá grunnskólastjórum lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Rekstur fræðslumála 2018
Málsnúmer 2018030030Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar fjárhagsstöðu fræðslumála fyrir tímabilið janúar til október 2018.
Útboð á ritföngum og námsgögnum
Málsnúmer 2018120119Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar kynnti stöðu útboðs á námsgögnum og ritföngum.
Lagt er til að samningi Akureyrarbæjar og Ríkiskaupa um skrifstofuvörur (RK 02.01) verði sagt upp svo opna megi á möguleikann á almennu útboði.
Fræðsluráð vísar erindinu til bæjarráðs.Fundaáætlun fræðsluráðs 2019
Málsnúmer 2018120120Fræðsluráð samþykkir framlagða fundaáætlun fræðsluráðs fyrir janúar til júlí 2019.
Fylgiskjöl
Endurbætur á matsal Brekkuskóla
Málsnúmer 2018070571Erindi frá skólastjóra Brekkuskóla lagt fram til umræðu.
Fræðsluráð samþykkir að greiða lausafjárleigu vegna framkvæmda við endurbætur á hljóðvist í matsal Brekkuskóla.