Fræðslunefnd - 1
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirformaður
- Halldór Sigurður Guðmundsson
- Karólína Gunnarsdóttir
- Katrín Björg Ríkarðsdóttir
- Óskar Gísli Sveinsson
- Halla Margrét Tryggvadóttirstarfsmannastjóri
- Ingunn Helga Bjarnadóttirfundarritari
Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna - staða sjóðsins
Málsnúmer 2012090152Um áramótin 2008-2009 var ákveðið að gera tímabundið hlé á fjárveitingu í Námsstyrkjasjóð sérmenntaðra starfsmanna. Fræðslunefnd hefur frá árinu 2010 óskað eftir að aftur verði veitt fjármagni í sjóðinn sbr. bréf dagsett 6. desember 2010. \n\nÁ fundi kjarasamninganefndar 26. september 2011 ákvað nefndin að framlengja hléið um eitt ár með svofelldri bókun: \nFormaður kjarasamninganefndar hefur farið yfir tilurð sjóðsins ásamt meirihluta bæjarráðs og ákvörðun verið tekin um að ekki verði sett fjármagn til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna á árinu 2012, þar sem sá sjóður er ekki bundinn kjarasamningum. Þar með er ljóst að það tímabundna hlé sem gert var á greiðslum til sjóðsins hefur verið lengt um eitt ár.\n\nÁ fundi fræðslunefndar 17. september 2012 bókaði nefndin eftirfarandi: \nMeð vísan til framangreindrar bókunar kjarasamninganefndar óskar fræðslunefnd eftir upplýsingum um fjárveitingar til sjóðsins og skorar á bæjarráð að fella úr gildi tímabundið hlé sem hefur verið gert á greiðslum til sjóðsins frá árinu 2009. \n\nÁ fundi fræðslunefndar 22. maí 2013 var erindið ítrekað og skorað á bæjarráð að veita að nýju fjármagni til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna frá hausti 2013. Ekki var veitt fjármagn til sjóðsins í fjárhagsáætlun ársins 2014. \n

Í Samþykkt um styrki til námsleyfa sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar segir í 1. gr.: Bæjarstjórn Akureyrar vill með samþykkt þessari stuðla að því að efla menntun og þekkingu sérmenntaðra starfsmanna sinna ....

Fræðslunefnd ítrekar erindi sitt og skorar á bæjarráð að veita að nýju fjármagni til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.

Námsstyrkjasjóður embættismanna - staða haust 2014
Málsnúmer 2014090039Farið yfir stöðu Námsstyrkjasjóðs embættismanna haustið 2014.

Námsstyrkjasjóður embættismanna - auglýsing haust 2014
Málsnúmer 2014090038Umræða um hvort og þá hvenær eigi að auglýsa eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna haustið 2014.

Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa næst eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna í október 2014 fyrir námsárið 2015-2016.

Stjórnenda- og starfsmannafræðsla
Málsnúmer 2013020005Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar kynnti fræðslu haustsins.

Fræðslunefnd þakkar fyrir kynninguna.