Framkvæmdaráð - 303
06.03.2015
Hlusta
- Kl. 08:45 - 11:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 303
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Eiríkur Jónsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista mætti ekki á fundinn og ekki varamaður í hans stað.[line][line]Farið var kl. 08:45 í skoðunarferð á Framkvæmdamiðstöð og til Strætisvagna Akureyrar og komið til baka í Ráðhúsið kl. 10:15 og gengið til formlegrar dagskrár.[line]
Beitilönd í eigu Akureyrarbæjar - tilhögun rekstrar
Málsnúmer 2015020150Tekið fyrir erindi dagsett 17. febrúar 2015 frá Hólmgeiri Valdemarssyni f.h. Hestamannafélagsins Léttis um breytt fyrirkomulag á rekstri beitarhólfa í eigu bæjarins.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2014080067Lagðar fram tillögur framkvæmdadeildar að tækjakaupum fyrir Framkvæmdamiðstöð árið 2015.
Farið var yfir framlagðar tillögur framkvæmdadeildar og þær samþykktar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Stjórnunar- og rekstrarúttekt á starfsemi Framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar og mótun úrbótaáætlunar
Málsnúmer 2014110035Farið yfir tillögur frá ráðgjafafyrirtækinu Capacent.
Arnar Jónsson ráðgjafi frá Capacent tók þátt í fundinum í gegnum síma.