Umhverfis- og mannvirkjaráð - 170
- Kl. 08:15 - 11:56
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 170
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttirvaraformaður
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- Heimir Sigurpáll Árnasonáheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Georg Fannar Haraldssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Ófyrirséð viðhald 2023 og 2024
Málsnúmer 2022120691Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi framlengingu verksamninga um ófyrirséð viðhald fyrir umhverfis- og mannvirkjasvið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja verksamninga í öllum flokkum í ófyrirséðu viðhaldi um eitt ár eða til 31. desember 2025 nema í blikksmíði sem verður boðin út aftur.
Efniskaup 2023 og 2024
Málsnúmer 2022120692Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi framlengingu samninga á efniskaupum umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samninga um efniskaup um eitt ár eða til 31. desember 2025 við alla efnissala.
Reglubundið eftirlit með brunavörnum 2023-2025
Málsnúmer 2023030205Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi framlengingu verksamnings um reglubundið eftirlit með brunaviðvörunarkerfum Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samning um eftirlit með brunaviðvörunarkerfum Akureyrarbæjar um eitt ár eða til 31. desember 2025.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 2024100376Afgreiðsla málsins er trúnaðarmál og fært í trúnaðarmálabók umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Þjóðvegir á Akureyri - forgangsröðun framkvæmda
Málsnúmer 2024091322Lagður fram til kynningar verkefnalisti varðandi framtíðarsýn sameiginlegra verkefna Akureyrarbæjar og Vegagerðarinnar.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni og hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Úrgangsmál - rekstur grenndarstöðva og gámasvæðis
Málsnúmer 2022110167Lagt fram minnisblað dagsett 26. september 2024 varðandi útboð á rekstri grenndarstöðva og gámasvæðis á Akureyri.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lagðar fram gjaldskrár fyrir árið 2025 vegna umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagðar gjaldskrár fyrir sitt leyti fyrir árið 2025 og vísar þeim til bæjarráðs.
Fjárhagsáætlun UMSA - 2025
Málsnúmer 2024050867Lagðar fram rekstraráætlanir allra deilda umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar, Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð, Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli, Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar, Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála og Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sátu fundinn undir þessum lið.