Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 779
- Kl. 13:00 - 13:40
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 779
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Arnar Ólafsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Ægisnes 2 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2016120135Erindi dagsett 18. ágúst 2020 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Hymis ehf., kt. 621292-3589, sækir um breytingar fyrir hús nr. 2 við Ægisnes. Sótt er um leyfi til að bæta við brunaslöngu á austurvegg 1. hæðar.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson.Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Geislagata 12 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2020020156Erindi dagsett 7. febrúar 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Verkmax hf., kt. 610999-2129, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í Geislagötu 12. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason og fyrir liggja drög að eignaskiptasamningi fyrir húsið.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Sandgerðisbót 2D - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020071055Erindi dagsett 28. júlí 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs, kt 410169-6229, sækir um byggingarleyfi og heimild til jarðvegsskipta að Sandgerðisbót 2D, mhl. 01. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 18. ágúst 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Sandgerðisbót 2C - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020071056Erindi dagsett 28. júlí 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs, kt 410169-6229, sækir um byggingarleyfi og heimild til jarðvegsskipta að Sandgerðisbót 2C, mhl. 02. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 18. ágúst 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Eyrarlandsvegur 28 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020080369Erindi dagsett 13. ágúst 2020 frá Ingvari Ívarssyni þar sem hann fyrir hönd Menntaskólans á Akureyri, kt. 460269-5129, æskir um leyfi til að gera útiíþróttasvæði vestan við leikfimihúsið (Fjósið). Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ingvar Ívarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Dalsgerði 2d - umsókn um úrtak úr kantsteini fyrir bílastæði
Málsnúmer 2020080490Erindi dagsett 17. ágúst 2020 þar sem Grímur Sævar Kristjánsson sækir um úrtak úr kantsteini fyrir bílastæði við hús nr. 2d við Dalsgerði. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi getur fallist á að gert verði eitt stæði vestan hússins. Bent er á að skv. lóðarsamningi er gert ráð fyrir sameiginlegum bílastæðum fyrir norðan húsið.
Sokkatún 2-6 - byggingarleyfi
Málsnúmer BN070240Erindi dagsett 20. ágúst 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Halldórs Sigurbergssonar og Hildar Andrésdóttur sækir um að breyta geymslu innan bílgeymslu í baðherbergi ásamt því að einu herbergi verði breytt í geymslu. Einnig er geymsluloft í bílgeymslu.
Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Halldóruhagi 1 - Kjarnagata 59 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020061225Erindi dagsett 30. júní 2020 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Trétaks ehf., kt. 551087-1239, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsinu Halldóruhaga 1, mhl. 01, og bílakjallara, mhl. 03, á lóðinni nr. 59 við Kjarnagötu samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 18. ágúst 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.