Velferðarráð - 1312
- Kl. 14:00 - 15:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1312
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
NPA - tímagjald 2020
Málsnúmer 2019090606Tímagjald í NPA hefur hækkað reglulega frá því þjónustan hófst árið 2013. Nauðsynlegt er að tímagjald sé í takt við kjarasamninga þannig að NPA notendur geti greitt laun skv. þeim.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir samhljóða hækkun á tímagjaldi vegna NPA þannig að tímagjald sé í takt við kjarasamninga.
Viðauki vegna NPA
Málsnúmer 2019090589Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun NPA notendastýrð þjónusta að upphæð kr. 45,7 milljónir vegna ársins 2019.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019030355Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrstu 10 mánuði ársins frá búsetusviði, fjölskyldusviði og Öldrunarheimilum Akureyrar.
Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA, Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri ÖA og Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs sátu fundinn undir þessum lið.Fundaáætlun - velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Lögð fram áætlun um fundi velferðarráðs janúar - júní 2020.
Afskriftir lána 2014-2020
Málsnúmer 2014120067Lögð fram tillaga fjölskyldusviðs að afskriftum lána í fjárhagsaðstoð.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Jólaaðstoð 2019 - styrkbeiðni til velferðarráðs
Málsnúmer 2019110299Erindi dagsett 14. nóvember 2019 frá Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðishernum og Hjálparstarfi kirkjunnar um styrk til jólaaðstoðar.
Meirihluti velferðarráð samþykkir styrkveitingu að upphæð kr. 500 þúsund.
Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista sat hjá við atkvæðagreiðslu.KAON - umsókn um rekstrarstyrk
Málsnúmer 2019080501Erindi ódagsett, móttekið 28. ágúst 2019, frá Guðrúnu Dóru Clarke fyrir hönd KAON, þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk frá Akureyrarbæ að upphæð kr. 2 milljónir á ári næstu fimm ár vegna aukinna útgjalda félagsins.
Málið tekið fyrir að nýju en var áður á dagskrá ráðsins 20. nóvember sl.Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.