Velferðarráð - 1294
- Kl. 14:00 - 17:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1294
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirforstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
- Laufey Þórðardóttirsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Búsetusvið - breyting á skipuriti
Málsnúmer 2019010260Lagt er fyrir minnisblað frá Laufeyju Þórðardóttur settum sviðsstjóra búsetusviðs þar sem beðið er um breytingu á skipuriti til að ráða nýjan forstöðumann.
Velferðarráð samþykkir breytingu á skipuriti og vísar málinu til bæjarráðs.
Fjárhagsaðstoð - reglur
Málsnúmer 2019010388Lagðar fram tillögur að breytingum á reglum Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Lagt fram kynningar og umræðu. Halldóru Kristínu Hauksdóttur lögfræðingi fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram og leggja fram lokadrög og kostnaðargreiningu.
Samstarf um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa
Málsnúmer 2019010172Reykjavíkurborg óskar eftir samstarfi um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum borgarinnar.
Velferðarráð samþykkir að settum sviðsstjóra fjölskyldusviðs, Karólínu Gunnarsdóttur, verði falið að gera drög að samningi við Reykjavíkurborg um greiðslu gistináttagjalds neyðarathvarfa og þau drög lögð fram á næsta fundi.
Fjárhagsaðstoð 2018
Málsnúmer 2018040005Lagt fram til kynningar yfirlit vegna veittrar fjárhagsaðstoðar árið 2018.
Fjölskyldusvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2019
Málsnúmer 2019020023Farið yfir stöðu málaflokka - félagsþjónusta og barnavernd.
Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.Lagt fram til kynningar.
NPA 2017-2019
Málsnúmer 2018020006Notendastýrð persónuleg aðstoð var lögfest skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi þjónustuþarfir 1. október 2018.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lögðu fram tillögu að hækkun á tímagjaldi fyrir vinnustund sem greidd er til þjónustuþega NPA samninga.Velferðarráð samþykkir tillögu að hækkun á tímagjaldi fyrir vinnustund sem greidd er til þjónustuþega NPA samninga.
Velferðarstefna 2018-2023
Málsnúmer 2018081103Mál áður á dagskrá 30. janúar. Unnið að gerð aðgerðaáætlunar við velferðarstefnu Akureyrarbæjar.
Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð óskar eftir því að bæjarráð, frístundaráð, fræðsluráð, skipulagsráð, stjórn Akureyrarstofu og umhverfis- og mannvirkjaráð geri tillögur til velferðarráðs að aðgerðaáætlun vegna þeirra verkefna í velferðarstefnu Akureyrarbæjar er heyra undir þeirra svið.
Óskað er eftir að ráðin skili niðurstöðum sínum til velferðarráðs fyrir 1. mars.
Velferðarráð felur sviðsstjórum að ljúka uppsetningu tillagna að aðgerðaáætlun eins og rætt var á fundinum. Tillögurnar verða teknar fyrir á næsta fundi velferðarráðs þann 20. febrúar.