Fræðslu- og lýðheilsuráð - 38
- Kl. 13:00 - 15:30
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 38
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Bjarney Sigurðardóttir
- Gunnar Már Gunnarsson
- Tinna Guðmundsdóttir
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Rannveig Elíasdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristín Jóhannesdóttirsviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
- Sesselja Sigurðardóttirleikskólaráðgjafi
- Sylvía Dögg Hjörleifsdóttirverkefnastjóri grunnskóla
Verkefni MSHA í þágu skólastarfs
Málsnúmer 2023091114Gunnar Gíslason forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri kynnti verkefni MSHA í þágu skólastarfs í Akureyrarbæ.
Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Gunnar Gíslasyni fyrir kynninguna.
Innra mats skýrslur grunnskóla 2023-2024
Málsnúmer 2023060725Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir verkefnastjóri grunnskóla kynnti matsskýrslur gæðaráða grunnskólanna.
Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð staðfestir fyrirliggjandi innra mats skýrslur.
Barnvænt sveitarfélag - gátlistar
Málsnúmer 2021101490Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístundamála, Karen Nóadóttir verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags og Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs kynntu hugmynd að útfærslu á gátlista vegna barnvæns sveitarfélags fyrir ráðinu.
Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð felur Karen Nóadóttir verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags og Bjarka Ármanni Oddssyni forstöðumanni skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs að aðlaga gátlista vegna barnvæns sveitarfélags sem tekinn yrði fyrir í lok hvers fundar fræðslu- og lýðheilsuráðs. Um er að ræða tilraunaverkefni til loka árs 2023.
Samningur um lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf
Málsnúmer 2023091138Alfa Aradóttir forstöðumaður frístunda- og forvarnamála kynnti drög að samningi við Bergið headspace um lögþröskuldaþjónustu við ungmenni.
Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar málinu áfram til kynningar í ungmennaráði og vísar því til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2024.
Íþróttahöllin Akureyri - endurnýjun á aðalkörfum
Málsnúmer 2023091094Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála lagði fram minnisblað varðandi endurnýjun á aðalkörfum í íþróttasal Íþróttahallarinnar.
Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð óskar eftir því við umhverfis- og mannvirkjasvið að framkvæmdirnar verði eignfærðar og samþykkir jafnhliða að bera lausafjárleigu vegna framkvæmdanna að upphæð 3,5 m.kr.
Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2024-2027
Málsnúmer 2023080260Umræður um fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2024-2027.
Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2024
Málsnúmer 2022080363Umræður um starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2024-2027.