Framkvæmdaráð - 318
- Kl. 08:15 - 10:50
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 318
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2014080067Farið yfir framkvæmdaáætlun ársins 2015 og stöðu á umhverfisverkefnum ársins.
Framkvæmdaráð ákveður að reglulega verði gerðar stöðuskýrslur um verkefni og skilamat við lúkningu.
Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild
Málsnúmer 2015080078Farið yfir tillögur að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2016-2019.
Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista vék af fundi kl. 09:18.
Steinefni fyrir malbik 2014-2015
Málsnúmer 2014040054Samningur við G.V. Gröfur ehf um vinnslu á steinefnum fyrir malbik árin 2014 og 2015 er að renna út. Heimilt er að framlengja samninginn um allt að tvö ár.
Meirihluti framkvæmdaráðs ákveður að fram fari endurskoðun á útboðsgögnum og verkið boðið út að nýju.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.Kynjasamþætting - innleiðing 2015
Málsnúmer 2015010201Kynntar niðurstöður verkefnisins "Greining á notkun strætisvagna".
Í ljós kemur að notkun kynja á strætisvögnum er nokkuð jöfn á milli kynja, eða 49% karlar og 51% konur.
Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista vék af fundi kl. 10:31.
Önnur mál í framkvæmdaráði 2015
Málsnúmer 2015010067Njáll Trausti Friðbertsson D-lista óskar eftir að gerð verði úttekt á rekstri gatnalýsingar í bænum.