Framkvæmdaráð - 312
- Kl. 08:15 - 11:30
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 312
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur ritaði fundargerð
Slökkvilið Akureyrar - staða og framtíð sjúkraflutninga
Málsnúmer 2015070071Rætt var um sjúkraflutninga og framtíðarskipulag hjá Slökkviliði Akureyrar.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri SA mætti á fund framkvæmdaráðs undir þessum lið.Snjómokstur og hálkuvarnir 2015-2018 - útboð
Málsnúmer 2014090240Lögð fram til kynningar endanleg útboðsgögn vegna útboðs á snjómokstri og hálkuvörnum.
Framkvæmdaráð samþykkir að auglýsa útboð, Snjómokstur og hálkuvarnir 2015-2018, með þeim breytingum sem samþykktar voru á fundinum.
Útboð framkvæmdadeildar árið 2015
Málsnúmer 2015020018Tekið fyrir að nýju, opnun tilboða, Borgarbraut-Bugðusíða, hringtorg, opnað 29. júní sl.
Framkvæmdaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Finns ehf.
Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.Umhverfisátak
Málsnúmer 2012080082Farið yfir ábendingu frá íbúa vegna framkvæmda við leiksvæði í Vörðu- / Fossagili.
Bæjartæknifræðingi falið að svara erindinu.
Hreinsun gatna - götusópun
Málsnúmer 2015070092Kynntur áætlaður kostnaður við hugsanleg kaup á nýjum götusóp fyrir Akureyrarbæ.
Önnur mál í framkvæmdaráði 2015
Málsnúmer 2015010067a) Helena Þuríður Karlsdóttir S-lista spurðist fyrir með erindi vegna útrýmingar á lúpínu í sveitarfélaginu.
b) Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista vakti athygli á því að gámar á endurvinnslustöðvum eru yfirfullir um helgar.
c) Njáll Trausti Friðbertsson D-lista spurðist fyrir um fyrirkomulag breytinga á gámavelli.