Velferðarráð - 1210
- Kl. 14:00 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1210
Nefndarmenn
- Jóhann Gunnar Sigmarssonvaraformaður
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Soffía Lárusdóttirframkvæmdastjóri
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla
Málsnúmer 2014020004Lagt fram minnisblað Helgu Vilhjálmsdóttur forstöðumanns sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla og Guðrúnar Ólafíu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar dagsett 22. maí 2015 um þörf fyrir viðbótarmönnun í sérfræðiþjónustunni.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar málinu til bæjarráðs.
Fjölskyldudeild - félagsþjónusta
Málsnúmer 2015060006Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram minnisblað dagsett 29. maí 2015 um stöðu forstöðumanns í félagsþjónustu.
Velferðarráð samþykkir skipulagsbreytinguna og vísar málinu áfram til umfjöllunar í kjarasamninganefnd.
Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2015
Málsnúmer 2015010173Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi og Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar kynntu málefni einstaklings.
Málefni einstaklinga eru vistuð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2015
Málsnúmer 2015010045Framkvæmdastjórar ÖA, búsetudeildar og fjölskyldudeildar lögðu fram og kynntu rekstraryfirlit fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins.
Fundir Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV)
Málsnúmer 2015040217Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA kynnti fundargerð frá aðalfundi SFV þann 17. apríl sl. og fundargerðir varðandi viðræður um þjónustusamninga.
Heimsókn frá Embætti landlæknis til Öldrunarheimila Akureyrar
Málsnúmer 2015050191Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA greindi í stuttu máli frá heimsókn landlæknis til ÖA þann 29. maí sl. Þar kynnti landlæknir sér stefnu og starfsemi ÖA ásamt því að skoða heimili í Austurbyggð og Lögmannshlíð. Með framkvæmdastjóra ÖA tóku þátt í fundinum með landlækni, Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri Hlíðar, Unnur Harðardóttir forstöðumaður Austurhlíða, Þóra Sif Sigurðardóttir forstöðumaður Lögmannshlíðar og Heiðrún Björgvinsdóttir rekstrarstjóri ÖA.
Öldrunarheimili Akureyrar - gjafir
Málsnúmer 2014110182Framkvæmdastjóri ÖA Halldór Sigurður Guðmundsson greindi frá að í tilefni Gleðidaga eða opins húss á ÖA dagana 29. og 30. maí hafi hann veitt viðtöku lista- og hugverkum frá Jóhanni Ingimarssyni (Nóa), íbúa í Víðihlíð. Nói hefur fært ÖA að gjöf fjögur verk eftir sig, verkið "Gosið" í anddyri Hlíðar ásamt hönnun á borði og hillum þar, útilistaverkið "Sól og Máni" sem er í suðurgarði Hlíðar, verkið "Hringur" í anddyri Hlíðar og síðan verkið "Tengsl" sem afhent var á Gleðidögunum og er á veggjum í Kaffi Sól.
Velferðarráð felur framkvæmdastjóra að færa Jóhanni Ingimarssyni, Nóa, bestu þakkir fyrir höfðinglegar gjafir til Öldrunarheimila Akureyrar.
Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna
Málsnúmer 2013120021Framkvæmdastjóri ÖA Halldór Sigurður Guðmundsson gerði grein fyrir samráðsfundi með fulltrúum Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og erindi sem sent hefur verið til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) í kjölfar samráðsfundarins þar sem leitað er eftir samstarfi ÖA, SAk og HSN.
CONNECT - verkefnið
Málsnúmer 2014060231Framkvæmdastjóri ÖA Halldór Sigurður Guðmundsson kynnti stuttlega og sýndi myndband frá norsku fyrirtæki sem hefur þróað búnað sem nýttur er við líkamsþjálfun eldra fólks og er tengdur við myndupptökur af nærumhverfi og æskuslóðum.
Fundaáætlun velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Lögð fram til kynningar fyrstu drög að fundaáætlun haustið 2015. Rætt var um áherslur og efnisflokka.
Félagsdómur - Sjúkraliðafélag Íslands (SLFÍ) og Samninganefnd sveitarfélaga (SNS)
Málsnúmer 2015010253Lögð fram til kynningar niðurstaða Félagsdóms frá 20. maí 2015 í máli SLFÍ og SNS.