Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 950
- Kl. 11:00 - 11:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 950
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Hjálmar Árnasonfundarritari
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
Gleráreyrar 1, rými 1-3, mathöll - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024010736Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignarfélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir mathöll í rýmum 1, 2 og 3 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Þingvallastræti 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024010742Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Ívar Hauksson fyrir hönd G.M.Í. ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir nýbyggingu á lóð nr. 31 við Þingvallastræti. Óskað er eftir að byggja vinnustofu. Innkomin gögn eftir Ívar Hauksson.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.
Rauðamýri 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Málsnúmer 2024010797Erindi dagsett 15. janúar 2024 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Ámunda Rögnvaldssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir endurbótum á húsi nr. 16 við Rauðumýri. Meðal annars á að skipta um þak og stækka gluggaop. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.