Umhverfis- og mannvirkjaráð - 81
- Kl. 08:15 - 10:20
- Fjarfundur
- Fundur nr. 81
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021
Málsnúmer 2020080605Lagt fram fjárhagsáætlunarferli fyrir árið 2021.
Nökkvi siglingaklúbbur - útboð framkvæmda
Málsnúmer 2015030205Lögð fram opnun tilboða í verklegar framkvæmdir dagsett 10. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
BB Byggingar ehf. kr. 220.580.389 118%
Sigurgeir Svavarsson ehf. kr. 204.331.986 110%
Kostnaðaráætlun kr. 186.455.283
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Sigurgeirs Svavarssonar ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Gatnamót Hörgár- og Hlíðarbrautar - endurbætur
Málsnúmer 2020080607Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
Finnur ehf. kr. 63.510.010 101%
Nesbræður ehf. kr. 49.637.300 79%
Kostnaðaráætlun kr. 62.904.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Nesbræðra ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Sjafnargata, Hörgárbraut - stígar
Málsnúmer 2020080609Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
Finnur ehf. kr. 32.466.660 76%
Nesbræður ehf. kr. 28.594.800 67%
Kostnaðaráætlun kr. 42.686.000
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Nesbræðra ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Kaupvangsstræti - hellulögn
Málsnúmer 2020080608Lögð fram opnun tilboða í verkið dagsett 6. ágúst 2020. Tvö tilboð bárust:
Garður og Hönnun ehf. kr. 29.492.000 112%
Finnur ehf. kr. 25.505.270 97%
Kostnaðaráætlun kr. 26.402.500
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Finns ehf. með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Jörvabyggð 14 - sala eignar
Málsnúmer 2020080610Lagt til að eignin verði sett í opinbert söluferli.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að setja húsið í opinbert söluferli með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Sólvallagata 7 Hrísey - sala eignar
Málsnúmer 2020080611Lagt til að eignin verði sett í opinbert söluferli.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að setja húsið í opinbert söluferli með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.
Hólasandslína 3 - eftirlit
Málsnúmer 2020020127Lögð fram til kynningar drög að samningi við Landsnet hf. um kostnað vegna útgáfu framkvæmdaleyfis og eftirlits með framkvæmdum við Hólasandslínu 3 ásamt drögum að kostnaðaráætlun vegna eftirlitsins dagsettum 10. ágúst 2020. Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Sigurhæðir - breytingar vegna fyrirhugaðrar útleigu
Málsnúmer 2020060921Lagt fram minnisblað 2 dagsett 5. ágúst 2020 vegna málsins.
Lundarskóli - endurbætur á B álmu
Málsnúmer 2020020505Rætt um stöðuna á framkvæmdunum og flutningnum á hluta starfseminnar í Rósenborg og Íþróttahöllina.
UMSA - viðaukar 2020
Málsnúmer 2020030080Lagðar fram beiðnir til bæjarráðs um viðauka vegna framkvæmda í Lundarskóla og flutnings hluta starfseminnar í Rósenborg og Íþróttahöll samtals 150 milljónir króna ásamt viðauka vegna framkvæmda Bílaklúbbs Akureyrar við ofanvatn innan og utan svæðis samtals 9,3 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samhljóða að óska eftir viðauka til bæjarráðs vegna framkvæmda í Lundarskóla að upphæð 150 milljónir króna.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir með fjórum atkvæðum að óska eftir viðauka til bæjarráðs vegna framkvæmda við ofanvatn innan og utan svæðis hjá Bílaklúbbi Akureyrar að upphæð 9,3 milljónir króna.
Unnar Jónsson S-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.