Öldungaráð - 1
- Kl. 14:00 - 15:40
- Rósenborg - fundarherbergi samfélagssviðs 2. hæð (austur)
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Sigurður Hermannssonvaraformaður
- Gunnar Gíslason
- Halldór Gunnarsson
- Anna G Thorarensen
Starfsmenn
- Sigríður Stefánsdóttirframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Samþykkt um Öldungaráð Akureyrarkaupstaðar
Málsnúmer 2014040148Samþykktin lögð fram
Framkvæmdastjóra falið að senda út tilkynningu til formanna nefnda og embættismanna um að ráðið sé tekið til starfa. Minnt sérstaklega á ákvæði 3. gr.: "Nefndir og ráð bæjarins skulu senda öldungaráði til umsagnar málefni, sem varða stefnumótun og þjónustu við eldri borgara og vera í samráði um hagsmuni þessa aldurshóps".
Skipan ráðsins
Málsnúmer 2014040148Fulltrúar bæjarstjórnar:
Dagbjört Pálsdóttir, formaður
Gunnar Gíslason
Varamaður: Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Fulltrúar félags eldri borgara:
Sigurður Hermannsson
Halldór Gunnarsson
Anna G. Thorarensen
Varamaður: Arnheiður KristinsdóttirKosning varaformanns skv. 4. grein í samþykkt um ráðið.
Málsnúmer 2014040148Kosinn varaformaður
Öldungaráð kýs Sigurð Hermannsson sem varaformann ráðsins.
Störf ráðsins og verkefni
Málsnúmer 2014040148Rætt um verkefni ráðsins og áherslur á árinu.
Ráðið samþykkir að afla upplýsinga og fá heimsóknir frá þeim sem sjá um þjónustu við eldri borgara og fara í skoðunarferðir og efna til fundarhalda. Þetta gildir m.a. um öldrunarheimilin, búsetudeild, heimahjúkrun og aðra þjónustu frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Einnig rætt um úttekt á öldrunarheimilum bæjarins, en skýrsla liggur nú fyrir.
Ráðið mun einnig láta sig varða ýmsa fleiri þætti t.d. skipulag bæjarins og leiðakerfi SVA.
Einnig mun ráðið fá til kynningar niðurstöður af þingi um farsæla öldrun sem fór fram á síðasta ári og einnig frá málþingi um félagsstarf sem haldið var í nóvember sl.Ákvörðun um næsta fund
Málsnúmer 2019020301Rætt um fundartíma
Ákveðið að næsti fundur verði haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 14.
Ráðið óskar eftir að fulltrúar frá Öldrunarheimilum Akureyrar, búsetudeild og Heilbrigðisstofnun Norðurlands á fundinn til að gefa upplýsingar um þjónustu og svara spurningum ráðsmanna.