Umhverfis- og mannvirkjaráð - 75
- Kl. 08:15 - 10:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 75
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónssonvaraformaður
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Loftgæðamál og aðgerðaráætlun í Akureyrarbæ
Málsnúmer 2018110215Lagðar fram verklagsreglur dagsettar 26. mars 2020 varðandi aðgerðir gegn svifryki.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins.
Slökkviliðið - tímabundin fjölgun v. COVID-19
Málsnúmer 2020030672Kynning á aðgerðum Slökkviliðs Akureyrar í ljósi COVID-19.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna og styður þær aðgerðir sem slökkviliðsstjóri hefur gripið til með tímabundinni fjölgun starfsmanna vegna COVID-19.
Sundlaug Akureyrar - aðstaða fyrir fatlaða
Málsnúmer 2019020424Lagt fram minnisblað dagsett 26. mars 2020 varðandi viðhald í Sundlaug Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ráðast í endurbætur á búningsklefum á 1. og 2. hæð. í Sundlaug Akureyrar.
Sparkvellir við grunnskóla - endurnýjun á gervigrasi 2019
Málsnúmer 2019030361Lagt fram skilamat dagsett 26. mars 2020 varðandi gervigrasvelli við Lundarskóla og Giljaskóla.
Hlíð - endurnýjun eldhústækja
Málsnúmer 2020030483Lagt fram minnisblað dagsett 16. mars 2020 varðandi verkefnið Kokkað og kælt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leita tilboða og ráðast í verkið í framhaldinu.
Leikskólinn Klappir við Glerárskóla
Málsnúmer 2018050021Lagt fram minnisblað dagsett 11. mars 2020 varðandi opnun tilboða í byggingu á leikskólanum Klöppum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka lægsta tilboði. Ráðið felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga til samninga við Hyrnuna ehf.
Miðhúsabraut - frárein að Bónus
Málsnúmer 2019110461Lagt fram minnisblað dagsett 18. mars 2020 varðandi opnun tilboða í gerð fráreinar af Miðhúsabraut að Bónus.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka lægsta tilboði. Ráðið felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga til samninga við Finn ehf.
Stigi frá Gilsbakkavegi að Kaupvangsstræti
Málsnúmer 2020030486Lagt fram minnisblað dagsett 19. mars 2020 varðandi viðhald á stiga frá Gilsbakkavegi niður að Kaupvangsstræti.
Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg
Málsnúmer 2019110416Lagt fram minnisblað dagsett 26. mars 2020 varðandi byggingu göngu- og reiðbrúar yfir Glerá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði frá samningum um verkið og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.
Brú - Eyjafjarðará vesturkvísl
Málsnúmer 2019110327Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 26. mars 2020 varðandi byggingu brúar yfir vesturkvísl Eyjafjarðarár sunnan við flugvöllinn á Akureyri.
Veirufaraldrar - aðgerðaáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs
Málsnúmer 2020030482Viðbragðsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs vegna COVID-19 dagsett 18. mars 2020 kynnt fyrir ráðinu.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.