Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 259
- Kl. 08:15 - 09:55
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 259
Nefndarmenn
- Dagur Fannar Dagssonformaður
- Eiríkur Jónsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun 2015 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014080035Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar mætti á fundinn undir þessum dagskrárlið og fór yfir fjármögnun Fasteigna Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar þakkar fjármálastjóra fyrir góða kynningu.
Naustaskóli - íþróttahús
Málsnúmer 2015020029Lögð fram niðurstaða útboðs á innanhússfrágangi í íþróttahúsi Naustaskóla.
Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Dagur Fannar Dagsson L-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfann að fjalla um þennan lið.
Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.
Dagur Fannar Dagsson L-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við eftirfarandi aðila:
Bút ehf í lagnahlutann, Blikk- og tækniþjónustuna ehf í loftræstihlutann, Rafmenn í rafmagnshlutann, Trésmiðju Kristjáns Jónassonar ehf í húsasmíða- og innréttingahlutann,
Viðar Þór Pálsson í dúkalagnahlutann og Betri Fagmenn ehf í málningarhlutann.Hof menningarhús - kerfisloft í Hömrum
Málsnúmer 2015030192Rætt um óhapp sem varð í Hofi þar sem kerfisloftaplata í Hömrum féll í gólfið.
Búnaðarkaup fyrir skóla og leikskóla - óskir skóladeildar um aðkomu Fasteigna Akureyrarbæjar að endurnýjun búnaðar
Málsnúmer 2015030181Lagt fram erindi dagsett 18. mars 2015 frá skólanefnd þar sem óskað er eftir fjárveitingu til búnaðarkaupa í skólum og leikskólum á árinu.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir búnaðarkaupin samkvæmt framlögðum gögnum.
Pálmholt - beiðni um viðbætur við snjóbræðslu
Málsnúmer 2015030201Lagt fram minnisblað dagsett 19. mars 2015 vegna beiðnar um viðbætur við snjóbræðslu við leikskólann Pálmholt.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2016.
Ráðhús - stigahús á norðurhlið
Málsnúmer 2011040119Lögð fram niðurstaða útboðs á byggingu flóttastiga á norðurhlið Ráðhúss. Engin tilboð bárust í verkið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að verkið verði boðið aftur út síðar á árinu.
Verkfundargerðir FA 2015
Málsnúmer 2015010093Eftirfarandi verkfundargerð lögð fram á fundinum:
Skautahöllin - endurnýjun á svelli: 1. fundur verkefnisliðs dagsett 18. mars 2015.