Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 666
- Kl. 13:30 - 15:05
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 666
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill byggingarfulltrúa
- Björn Jóhannsson
Margrétarhagi 10 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017120492Erindi dagsett 27. desember 2017 þar sem Haraldur Árnason fyrir hönd Hrauna ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 10 við Margrétarhaga. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Harald Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 15. febrúar 2018.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði
Hafnarstræti 73 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2018010064Erindi dagsett 5. janúar 2018 þar sem Gunnlaugur Jónasson fyrir hönd Hótels Akureyrar ehf. sækir um að leyfi til að setja glugga á vesturhlið, neyðarútganga á norðurhlið og gera breytingar og útbúa 16 eininga gistiheimili í húsi nr. 73 við Hafnarstræti.
Innkomnar nýjar teikningar 8. febrúar 2018 þar sem gert er ráð fyrir undanþágu frá kröfu um lyftu í húsið.Staðgengill byggingarfulltrúa frestar erindinu og óskar eftir umsögn samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra um erindið.
Gránufélagsgata 19 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipluagi
Málsnúmer 2018020036Erindi dagsett 5. febrúar 2018 þar sem Valþór Brynjarsson fyrir hönd Gleypis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsi nr. 19 við Gránufélagsgötu. M.a. á að færa snyrtingar í viðbyggingu þar sem áður var stigi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 8. febrúar 2018 og samþykki eldvarnareftirlits.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Kringlumýri 20 - umsókn um leyfi fyrir útihurð
Málsnúmer 2018010023Erindi dagsett 2. janúar 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Ólafs Stefánssonar sækir um leyfi til að setja útihurð á austurhlið neðri hæðar húss nr. 20 við Kringlumýri ásamt tröppum. Meðfylgjandi er teikning eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. febrúar 2018.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Hrappsstaðir 146946 - umsókn um flutning á húsi
Málsnúmer 2016080112Erindi dagsett 26. ágúst 2016 þar sem Jóhann Freyr Jónsson sækir um leyfi til að flytja sumarhús, sem byggt var á Vatnsenda í Ólafsfirði, að Hrappsstöðum og gera á því lagfæringar samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 14. febrúar 2018.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Margrétarhagi 1 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2017050068Erindi dagsett 15. febrúar 2018 þar sem Bjarki Viðar Garðarsson fyrir hönd Norðausturs ehf. sækir um sex mánaða frest á framkvæmdum á lóð nr. 1 við Margrétarhaga.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir framkvæmdafrest til 31. júlí 2018.